Innlent

Ekki vitað hver upprunalegur smitberi er

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm

Tvö innanlandssmit greindust á landinu í gær í tveimur aðgreindum málum. Um er að ræða fyrsta innanlandssmitið sem greinist síðan 2. júlí og er möguleiki á hópsýkingu. Unnið er að smitrakningu.

Báðir einstaklingar sem greindust í gær eru með einkenni og komnir í einangrun. Í öðru málinu hafa nokkrir verið settir í fjórtán daga sóttkví en á þriðja tug í hinu málinu. Þar hafði einstaklingur tekið þátt í frjálsíþróttamóti í Hafnafirði um síðustu helgi og stendur smitrakning enn yfir. Einstaklingarnir þrjátíu teljast í hááhættu.

Yfir 200 keppendur voru skráðir á mótið samkvæmt Frey Ólafssyni, formanni Frjálsíþróttasambands Íslands.

Um er að ræða fyrsta innanlandssmitið sem greinist hér á landi síðan þann 2. júlí, en smitin tvö tengjast ekki.

„Það hafa ekki verið að greinast innanlandssmit, síðasta smitið greindist hér 2. júli og var það í tengslum við einstakling sem var að koma erlendis frá. Við getum ekki rakið þessi smit til smita erlendis frá þannig sú vinna er í gangi,“ sagði Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir.

Kórónuveiran á bráðamótökunni í Fossvogi

Ekki er vitað hver upprunarlegur smitberi er.

„En eru ekki allar líkur á því að smitið komi erlendis frá í ljósi þess að innanlandssmit hefur ekki grenist í svo langan tíma?“

„Jú mér finnst það mjög líklegt og það sýnir bara það að smit erlendis frá getur komið þó við séum að lágmarka áhættuna með þeim aðgerðum sem eru í gangi,“ sagði Þórólfur.

Um hugsanlega hópsýkingu er að ræða.

„Já það er alltaf möguleiki á því og ég held að við þurfum að vera undir það búin. Það kæmi mér ekki á óvart ef við fengum litlar hópsýkingar en ég tel mjög ólíklegt að við fáum einhverjar stærri hópsýkingar eða faraldur hér innanlands. Ef við vinnum þetta svona þá held ég að við ættum að geta kæft þetta í byrjun.“

Þórólfur biðlar til fólks að passa upp á einstaklingsbundnar sýkingarvarnir.

„Ég vil biðja fólk að passa sig gríðarlega vel. Ef fólk er að veikjast. Hafa þá samband við heilbrigðiskerfið, halda sig heima. Vera ekki innan um aðra,“ sagði Þórólfur.


Tengdar fréttir

Tvö innan­lands­smit greindust í gær

Tveir greindust hér á landi í gær í tveimur aðgreindum málum. Báðir einstaklingar eru með einkenni Covid-19 og eru nú komnir í einangrun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×