Man Utd var ekki tilbúið að borga svo hann fór til Dortmund Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 5. ágúst 2020 07:00 Bellingham á æfingu með Dortmund. Alex Gottschalk/Getty Images
Jude Bellingham – ungstirnið sem gerði garðinn frægan með Birmingham City í ensku B-deildinni í vetur – valdi Borussia Dortmund fram yfir Manchester United. Bæði lið vildu fá hann í sínar raðir eftir að ensku B-deildinni lauk. Fór það svo að Bellingham valdi Dortmund en enskir leikmenn virðast vinsælir þar í landi þessa dagana. Eflaust fær miðjumaðurinn Bellingham að spila meira hjá Dortmund enda miðja Man United vel mönnuð og leikmaðurinn tiltölulega nýorðinn 17 ára gamall. Þá greinir íþróttavefurinn ESPN frá því að Man Utd hafi ekki boðið Bellingham jafn há laun og Dortmund gerði. United var þó tilbúið að greiða sömu upphæð og þýska félagið en alls gæti Dortmund greitt tæplega 23 milljónir punda fyrir leikmanninn. Bellingham ku hafa verið nálægt því að ganga til liðs við Man United í janúarglugganum en á endanum lagði félagið meiri áherslu á að fá Bruno Fernandes í sínar raðir. Það reyndist ágætis ákvörðun. Solskjær sá fyrir sér að Bellingham myndi spila allavega 20 leiki fyrir United á næstu leiktíð en Ed Woodward og Glazer-fjölskyldan, eigendur félagsins, voru ekki tilbúin að setja slíkan pening í leikmann sem á aðeins að baki eitt tímabil með aðalliði – og það í B-deildinni. Eigendurnir eru brenndir eftir samninginn sem Alexis Sanchez fékk hjá félaginu. Hann er nú á leið til Inter Milan eftir hörmulegan tíma á Old Trafford.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Fleiri fréttir Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Sjá meira