Bayern München og RB Leipzig gerðu markalaust jafntefli í uppgjöri toppliða þýsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Bayern er því enn með eins stigs forskot á Leipzig á toppnum. Borussia Dortmund og Borussia Mönchengladbach eru svo skammt undan.
Heimamenn voru miklu meira með boltann en vörn gestanna var öflug.
Bayern fékk vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks en dómnum var breytt eftir að atvikið var skoðað á myndbandi.
Timo Werner og Marcel Sabitzer fengu bestu færi Leipzig en Leon Goretzka komst næst því að skora fyrir Bayern.
Leipzig hefur ekki unnið í síðustu þremur deildarleikjum sínum; gert tvö jafntefli og tapað einum.
Markalaust í toppslagnum í Þýskalandi
