Juventus, topplið ítölsku úrvalsdeildarinnar, átti í engum vandræðum er Fiorentina kom í heimsókn í dag.
Leikurinn fór nokkuð rólega af stað en á 39. mínútu var dæmd vítaspyrna eftir að Fabrizio Pasqua, dómari leiksins, fór í hinn margumrædda skjá. Á endanum fór Cristiano Ronaldo á vítapunktinn og skoraði af öryggi. Er þetta níundi leikurinn í röð sem hann skorar í.
Var þetta eina mark fyrri hálfleiks en á 79. mínútu endurtók sagan sig. Vítaspyrna dæmd þökk sé myndbandsdómgæslu, Ronaldo á punktinn og knötturinn í netið. Staðan orðin 2-0 og ljóst að Fiorentina voru ekki að fara fá neitt úr þessum leik.
Hollenska ungstirnið Matthijs De Ligt skoraði svo þriðja mark meistaranna með góðum skalla eftir hornspyrnu á 90. mínutu.
Staðan orðin 3-0 og þar við sat. Juventus eykur þar með forystu sína á toppi deildarinnar í sex stig en Inter Milan eiga leik í kvöld gegn Udinese.
Juventus í engum vandræðum með Fiorentina | Ronaldo enn sjóðheitur
