Innlent

Vann 18 milljónir í Lottóinu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Tölur kvöldsins voru 5, 17, 29, 32 og 29. Bónustalan var 30.
Tölur kvöldsins voru 5, 17, 29, 32 og 29. Bónustalan var 30. Vísir/Getty

Einn ljónheppinn þátttakandi í Lottóinu var með allar tölur réttar útdrætti kvöldsins í kvöld. Fær viðkomandi heilar 18 milljónir og 97 þúsund krónur í sinn hlut.

Vinningshafinn ljónheppni hlaut vinning á áskriftarmiða en einn var með 2. vinning, heilar 421 þúsund krónur en miðinn var keyptur í Holtanesti í Hafnarfirði.

Enginn var með allar jókertölurnar rétta en fimm voru með fjórar jókertölur í réttri röð og hlýtur hver 100 þúsund krónur í sinn hlut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×