Nýr Golf GTI verður frumsýndur á bílasýningurinni í Genf í Sviss í næstu viku. Bíllinn verður aðalstjarna Volkswagen á sýningunni. Golf GTI er sportútgáfa af Volkswagen Golf.
Nýr GTI er búinn 2,0 lítra bensín vél með forþjöppu sem skilar 242 hestöflum. Það má því gera ráð fyrir að hann komist frá 0 - 100 km/klst. á rétt rúmum sex sekúndum. Aflið er einungis sent til framhjólanna. Hann verður fáanlegur með sex gíra beinskiptingu eða DSG sjálfskiptingu.

Auk nýs GTI verða GTE og GTD útgáfur kynntar til leiks. GTE er tengiltvinnbíll og GTD er dísil sportútgáfa. Vélin í GTD á að vera hreinlegasta dísilvél í heimi að sögn Volkswagen. Hún skilar nú 197 hestöflum í stað 181 áður, hún er 2,0 lítrar og er einungis fáanleg með DSG sjálfskiptingu.
GTE verður jafn öflugur og GTI, skilar 242 hestöflum, GTE mun þó skila meira togi. Aflið er þó framkallað á allt annan hátt. GTE hefur 1,4 lítra bensín vél og restin kemur svo frá rafmótor sem er tengdur við 13 kWh rafhlöðu. Hann kemst tæpa 60 km á rafmagninu eingöngu. Hann notast við sex gíra DSG sjálfskiptingu.
GTI ennþá kóngurinn
Þrátt fyrir að GTE verði jafn öflugur og GTI eru rafhlöðurnar í GTE bílnum líklegar til að gera hann talsvert þyngri en GTI og GTI er því sennilega enn hraðskreiðastur þeirra. Það er þangað til Golf-R mætir seinna með fjórhjóladrif og yfir 300 hestöfl.