Enska landsliðið hirti toppsætið af Belgum í riðli 2 í A-deild Þjóðadeildarinnar en Ísland er eitt liðanna fjögurra í riðlinum.
Belgar voru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina þar sem þeir lögðu Ísland örugglega 5-1 og unnu einnig öruggan 0-2 sigur á Dönum. Englendingar hins vegar mörðu strákana okkar 0-1 og gerðu svo markalaust jafntefli við Dani.
Romelu Lukaku kom Belgum yfir á Wembley í dag með marki af vítapunktinum en Marcus Rashford svaraði í sömu mynt þegar hann fékk tækifæri af vítapunktinum.
Mason Mount, leikmaður Chelsea, skoraði svo það sem reyndist sigurmark leiksins og tryggði Englendingum stigin þrjú. Lokatölur 2-1.