Aníta Rut afar ósátt við að vera stimpluð nýnasisti Jakob Bjarnar skrifar 22. október 2020 15:09 Hver lögreglumaðurinn á fætur öðrum lýsir nú yfir samstöðu og mótmæla því að vera vændir um rasisma. Það gera þeir með því að skreyta forsíðumynd sína á Facebook blárri línu. Þeirra á meðal eru Aníta, Arinbjörn Snorrason og Árni Friðleifsson.
Anita Rut Harðardóttir varðstjóri er afar ósátt við hvernig umræðan hefur þróast um meintan rasisma innan lögreglunnar. Hún segir það óþolandi að mega nú heita nýnasisti á sumum bæjum. Kveikja umræðunnar var mynd sem birtist af Anítu þar sem sjá má í nokkur merki sem hún ber á undirjakka sínum. Fjölmargir hafa stigið fram og haldið því fram að merkin séu höfð til marks um rasisma og öfgaskoðanir. Arinbjörn Snorrason formaður lögreglufélags Reykjavíkur segir að hljóðið sé þungt í lögreglumönnum vegna ummæla Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur þingmanns Pírata eftir að fánamerki tengd öfgaskoðunum á búningi lögreglukonu fóru í dreifingu í gær. Þingmaðurinn ætti jafnvel að segja af sér. Þórhildur Sunna hefur kallað eftir því að málið verði tekið til sérstakrar umfjöllunar fyrir allsherjar- og menntamálanefnd. Þetta sagði hann í samtali við Vísi nú fyrr í dag. Það sem gerst hefur síðan er að fjölmargir lögreglumenn hafa tekið upp á því að breyta forsíðumyndum á Facebooksíðum sínum með því að bæta blárri línu á myndir sínar. Fjölmargir lögreglumenn hafa nú þegar gripið til þess og hefur myndast verulegt hópefli í þeirra röðum. Mikil samstaða meðal lögreglumanna „Mér sýnist það. Þetta fer um eins og eldur í sinu. Ekkert skrítið miðað við hvernig umræðan er og hvernig ummælin voru hjá þessum blessaða þingmanni voru,“ segir Aníta Rut í samtali við Vísi. Hún hafnar því alfarið að línan sé til marks um rasisma eða að þar búi einhver neikvæð þýðing að baki. „Það er ekki mín upplifun. Hefur aldrei verið neikvæði í mínum huga. Ég get ekki tekið ábyrgð á því hvernig aðrir kjósa að túlka merkingu þessara fána. Þetta er orðinn svo mikill skrípaleikur að ég veit ekki hvað mér á að finnast lengur.“ Aníta Rut og myndin sem hratt af stað umræðu sem Aníta segir grátlega. Hún geti ekki borið ábyrgð á því þó einhverjir rangtúlki þau merki sem hún ber.Eggert Jóhannesson Aníta Rut segist ekki hafa fengið svo mikið sem ein neikvæð skilaboð eftir að hún setti bláu línuna við forsíðumynd sína á Facebook, né eftir að málið kom upp. Þvert á móti hefur henni borist hvatning og svo hefur myndast mikil samstaða meðal lögreglumanna sem líta á þetta sem árás. „Gríðarleg samstaða frá mínum vinnufélögum og ég er stolt að tilheyra þessari stétt.“ Sárnar að vera stimpluð rasisti Aníta Rut segir merkingu Facebookgjörnings lögreglumanna vera einfalda í sínum huga. „Verið er að vekja athygli á bláu línunni, Þetta er ekki rasískt við hana eins og verið er að teikna þetta upp heldur er hún til marks um samstöðu meðal lögreglumanna. Okkar sem stöndum vörð um að þjóðfélagið sé gott. Við erum sú bláa lína sem gætum þess að regla ráði, við viljum verja fólkið í landinu og standa vörð um gott þjóðfélag. Við vinnum okkar vinnu og að hún er vanmetin.“ Aníta Rut hnykkir á því að henni þyki sorglegt hvernig Þórhildur Sunna talaði og lýsir sig alfarið sammála því sem fram kemur í máli Arinbjarnar. „Þessir fánar eru ekki slæmir, það er alveg á hreinu. Aldrei myndi ég taka þátt í ljótum leik sem þeim að bera fána sem koma slíkum skilaboðum á framfæri. Lögreglan stendur ekki fyrir slíkt. Ég skammast mín ekki fyrir þessa fána. Punicher-fáinn, ef hann stuðar fólk tek ég hann niður. Þetta er teiknimyndafígúra og ég spáði ekkert í þessu. En að saka mig um að vera nýnasisti, það er bara grátlegt. Ég er ekki sátt, búið að stimpla mig og ég er alls ekki sátt við það.“
Lögreglan Alþingi Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Innlent Fleiri fréttir Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin Niceair aflýsir jómfrúarfluginu „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Sjá meira