Skotvís harmar að yfirvöld skuli ekki hafa verið í nánari samvinnu við félagið fyrir komandi rjúpnaveiðitímabil. Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa hvatt rjúpnaveiðimenn til að vera heima og taka þannig þátt í baráttunni við kórónuveiruna.
Tilkynningin frá sóttvarnalækni og almannavarnadeildinni barst fimm klukkustundum áður en rjúpnaveiðitímabilið hófst í gær. Í henni kom fram að það væri ekki í anda núverandi reglna að fara í ferðalög á milli landshluta vegna rjúpnaveiði.
Skotveiðifélagið Skotvís segist hafa ítrekað óskað eftir fundum með yfirvöldum fyrir yfirvofandi rjúpnaveiðitímabil en ekki fengið slíkan fund. Tilmælin hafi borist án samtals við veiðimenn
„Með samtali hefði t.d. verið hægt að fresta fyrstu helginni og bæta þá við annari í byrjun desember og/eða opna SV-svæðið fyrir skotveiðum. Einfaldar aðgerðir sem mótvægi en fengu ekki umræðu,“ segir í yfirlýsingu félagsins og ljóst að mikil óánægja er meðal skotveiðimanna um þessi tilmæli.
„Samt er tekið fram að ALLIR eigi að halda sig heima. Það sýnist félaginu vera stefnubreyting frá því í gær. Einfaldara hefði verið að segja fólki þá að ferðast innanhúss þessa helgi og tilkynna það fyrr. það skýtur skökku við að þessum tilmælum er eingöngu beint til veiðimanna en ekki annarar útivistar þar sem fólk er í meiri nánd t.d. ferðalaga í sumarbústaði,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
Skotvís segist hafa að eigið frumkvæði hafa sett í gang með nokkrum fyrirvara herferð þar sem veiðimenn eru hvattir til að huga að sóttvörnum.
„Þar sem margir eru lagðir af stað eða geta ekki hætt við ferðir þá viljum við ítreka tilmæli okkar:
Forðist samneyti við aðra
Notið ekki þjónustu eða kaupið þjónustu
Ef tveir eða fleiri eru í bíl, hugið að sóttvörnum, sprittið og verið með grímur.
Veiðiferð skal vera ferð frá A til B, veiðar á veiðislóð, ferða frá B til A.
Farið varlega, akið eftir aðstæðum og ekki leggja í tvísýnt veður.
Við erum ÖLL í þessu saman, en það krefst samvinnu, samtals og sveigjanleika.
Við skorum á veiðimenn að hlýða þeim reglum sem eru í gildi hverju sinni og skorum á stjórnvöld að taka upp beint samtal við hagsmunasamtök veiðimanna.“