Braskarar komust yfir þúsundir PS5-tölva Vésteinn Örn Pétursson skrifar 24. nóvember 2020 18:56 Playstation 5 er eftirsótt leikjatölva. Phil Barker/Future Publishing via Getty
Playstation 5-leikjatölvan kom út á dögunum eftir að áhugamenn og aðdáendur biðu þolinmóðir um margra mánaða skeið. Margir höfðu lagt inn forpöntun til þess að koma höndum yfir gripinn. Tölvan var framleidd í heldur takmörkuðu upplagi í fyrstu lotu, og internetbraskarar virðast hafa komist yfir mikinn fjölda tækja, með það fyrir augum að selja á mun hærra verði en Sony. Samkvæmt frétt Business Insider um málið komst einn hópur braskara yfir um 3.500 tæki. Þúsund þeirra voru forpantaðar beint frá Sony, en aðrar komust þeir yfir í gegn um forsölur hjá þriðja aðila. Hópurinn, sem kallar sig CrepChiefNotify, samanstendur af 12 starfsmönnum og býður upp á áskrift að þjónustu sinni gegn gjaldi. Gegn greiðslu slíks gjalds fá viðskiptavinir ýmis tæki til að auðvelda kaup á ýmiskonar vörum sem framleiddar eru í takmörkuðu upplagi, svo sem tískufatnaði, strigaskóm og leikjatölvum á borð við Playstation 5. Gjaldið er frá 30 sterlingspundum upp í 400, það er á bilinu frá um 5.500 krónum upp í tæplega 73.000 krónur á mánuði. Hópurinn notaðist við forrit sem gera fólki kleift að komast fram fyrir í starfrænum röðum og komast fram hjá biðtíma milli pantana og tryggði sér þannig þennan fjölda leikjatölva, sem var ætlaður þeim þúsundum meðlima sem greiða áskriftargjald. Raunar greinir Business Insider frá því að einhverjir áskrifenda hafi tryggt sér á annan tug leikjatölva, sem þeir hyggist svo selja dýrum dómum til þeirra sem ekki voru svo heppnir að ná að næla sér í eintak. Hér má lesa ítarlega umfjöllun Business Insider um málið.
Sony Leikjavísir Tengdar fréttir Fyrstu PS5 tölvurnar afhentar á miðnætti í gær Vodafone hóf á miðnætti afhendingar á PlayStation 5 tölvum til viðskiptavina sinna en vélin seldist upp á örfáum klukkustundum þegar forsala hófst þann 17. september síðastliðinn. 19. nóvember 2020 22:09 Playstation 5: Stórt stökk fram á við í grafík og hraða Það er langt síðan mér hefur liðið jafn mikið eins og krakka aftur 9. nóvember 2020 10:19 Nýjar fjarstýringar PS5 opna ýmsa möguleika Hverri Playstation 5 leikjatölvu fylgir lítill leikur um vélmennið Astro og leikherbergi hans. Astro's Playroom. Þeim leikr er ætlað að kynna notendum möguleika nýju fjarstýringa leikjatövunnar, DualSense. 30. október 2020 16:55 Mest lesið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Eiður Smári og Halla Vilhjálms í skíðaævintýri Lífið „Samband okkar hefur alltaf verið flókið“ Lífið Ævintýrapar selur fallega fyrstu eign Lífið Eiginmaður Dolly Parton er látinn Lífið Hefndi kossins með kossi Lífið Flytur ekki inn í lúxusíbúðina Lífið Sturla elti Tinder-ástina til paradísarstrandar í Mexíkó Lífið Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Lífið samstarf Sýnir vonandi öðrum konum að lífið er ekki búið eftir þrítugt Lífið Fleiri fréttir Avowed: Í senn hefðbundinn og framúrskarandi hlutverkaleikur GameTíví: Erfið fjallganga hjá strákunum Kingdom Come Deliverance 2: Geggjuð fyrirsögn um geggjaðan leik Gráir fyrir járnum í GameTíví Sniper Elite: Resistance - Fátt nýtt í annars allt í lagi leik Sjá meira
Fyrstu PS5 tölvurnar afhentar á miðnætti í gær Vodafone hóf á miðnætti afhendingar á PlayStation 5 tölvum til viðskiptavina sinna en vélin seldist upp á örfáum klukkustundum þegar forsala hófst þann 17. september síðastliðinn. 19. nóvember 2020 22:09
Playstation 5: Stórt stökk fram á við í grafík og hraða Það er langt síðan mér hefur liðið jafn mikið eins og krakka aftur 9. nóvember 2020 10:19
Nýjar fjarstýringar PS5 opna ýmsa möguleika Hverri Playstation 5 leikjatölvu fylgir lítill leikur um vélmennið Astro og leikherbergi hans. Astro's Playroom. Þeim leikr er ætlað að kynna notendum möguleika nýju fjarstýringa leikjatövunnar, DualSense. 30. október 2020 16:55