Frumvarp um aukna álagningu á innfluttar landbúnaðarvörur nýtur mikils stuðnings Heimir Már Pétursson skrifar 4. desember 2020 12:01 Landbúnaðarráðherra telur nauðsynlegt að auka álögur á innfluttar landbúnaðarvörur til að bæta íslenskum bændum upp minni sölu hér á landi vegna mikillar fækkunar ferðamanna. Vísir/ Vilhelm Frumvarp landbúnaðarráðherra um tímabunda hækkun á álögum ríkisins á innfluttar landbúnaðarvörur virðist njóta stuðnings mikils meirihluta þingmanna. Þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar lýstu sig einir andsnúna frumvarpinu við fyrstu umræðu um það í gær.
Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra mælti fyrir frumvarpi um breytingar á búvörulögum í gær sem munu hækka álögur á innfluttfluttum landbúnaðarafurðum fram til ársins 2022. Þetta sé gert til að lágmarka áhrif kórónuveirufaraldursins á innlenda framleiðslu með mikilli fækkunar ferðamanna. Landbúnaðarráðherra segir ekki hægt að fullyrða að verð á landbúnaðarvörum hækki í verði með auknum álögum á innfluttar landbúnaðarvörur.Vísir/Vilhelm Hinn 1. janúar á þessu ári var álag á verð á innfluttum landbúnaðarafurðum frá ríkjum Evrópusambandsins lækkað. Það var gert með upptöku svo kallaðra jafnvægis útboða. Í því felst að tilboðsgjafar greiði lægsta samþykkta verð í tollkvóta í stað þess að greiða þá fjárhæð sem tilboð þeirra á uppboði kvótanna hljóðaði upp á. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að þetta væri gert til að síðan yrði hægt að hækka einnig verð á innlendum lándbúnaðarvörum og neytendur látnir borga kostnaðinn. Frumvarp landbúnaðarráðherra virðist njóta mikils meirahluta stuðnings á Alþingi. Þingmenn Miðflokksins vidu þó ganga lengra en ráðherra í umræðunum og segja tollasamningum við Evrópusambandið upp. En formaður Framsóknarflokksins hefur einnig mælt fyrir þeirri hugmynd. Logi Einarsson segir miklar líkur á að verð á landbúnaðarvörum muni hækka verði frumvarp landbúnaðarráðherra óbreytt að lögum.Vísir/Vilhelm Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar sagðist átta sig á þeim áföllum sem margar atvinnugreinar hefðu orðið fyrir og þar með matvælaframleiðslan. En það ætti einnig við um stóran hluta þjóðarinnar. „Það er um 25.000 manns atvinnulausir. Þessi kreppa bítur harðast það fólk sem þarf að horfa á eftir hverri krónu þegar það kaupir í matinn. Þetta þarf einfaldlega að hafa í huga þegar við ræðum frumvarp af þessum toga,“ sagði Logi. Jón Steindór Valdimarsson segir viðskiptahindranir ekki skila ávinningi til almennings.Vísir/Vilhelm Jón Steindór Valdimarsson þingmaður Viðreisnar tók í svipaðan streng og báðir sögðu þeir viðskiptafrelsi alla tíð hafa gefist almenningi best. Ekki ætti að styðja íslenskan landbúnað og matvælaframleiðslu með aukinni vernd og viðskiptahindrunum enda innflutningurinn lítill í stóra samhenginu. „Það má draga það mjög í efa að það að draga úr þessum innflutningi muni skipta nokkru einasta máli fyrir vanda bænda eða íslenska matvælaframleiðendur,“ sagði Jón Steindór. Landbúnaðarráðherra sagði verð á kjöti á heimsmarkaði hafa lækkað um 14 prósent á þessu ári. „Fullyrðingar um að þessi breyting muni koma til með að hækka verð til neytenda, ég held að það sé ekki á færi nokkurs manns að svara því,“ sagði Kristján Þór Júlíusson.
Landbúnaður Skattar og tollar Evrópusambandið Neytendur Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Tollamál úti á túni Það er grundvallarforsenda réttarríkis að allir fari að lögum, þó sérstaklega ríkið. Í ljós hefur komið að misræmi er í tölum Evrópusambandsins um útflutning á búvörum til Íslands og tölum íslenskra stjórnvalda um innflutning. 12. nóvember 2020 17:53 Ekkert svindl við innflutning félagsmanna FA á pitsaosti Talsvert hefur verið fjallað að undanförnu um misræmi í tölum Evrópusambandsins um útflutning á búvörum til Íslands og tölum íslenzkra stjórnvalda um innflutning. 11. nóvember 2020 16:31 Forsendubrestur tollasamninga Ferðamönnum til Íslands hefur fækkað stórlega með tilkomu Covid 19. Hótel og matsölustaðir standa tómir, samdráttur í ferðaþjónustu hefur víða áhrif. Blikur eru á lofti í íslenskum landbúnaði, mun minni sala hefur verið á íslenskum landbúnaðarvörum en í venjulegu árferði. 9. nóvember 2020 11:30 Mest lesið Árásir stóðu yfir í rúma tólf tíma Erlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Innlent Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Innlent Með bílinn fullan af fíkniefnum Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent „Það verður boðið fram í nafni VG“ Innlent Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Innlent Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Innlent „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Innlent Fleiri fréttir Með bílinn fullan af fíkniefnum „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Jónína vill taka við af Ásmundi Einari „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Sjá meira
Tollamál úti á túni Það er grundvallarforsenda réttarríkis að allir fari að lögum, þó sérstaklega ríkið. Í ljós hefur komið að misræmi er í tölum Evrópusambandsins um útflutning á búvörum til Íslands og tölum íslenskra stjórnvalda um innflutning. 12. nóvember 2020 17:53
Ekkert svindl við innflutning félagsmanna FA á pitsaosti Talsvert hefur verið fjallað að undanförnu um misræmi í tölum Evrópusambandsins um útflutning á búvörum til Íslands og tölum íslenzkra stjórnvalda um innflutning. 11. nóvember 2020 16:31
Forsendubrestur tollasamninga Ferðamönnum til Íslands hefur fækkað stórlega með tilkomu Covid 19. Hótel og matsölustaðir standa tómir, samdráttur í ferðaþjónustu hefur víða áhrif. Blikur eru á lofti í íslenskum landbúnaði, mun minni sala hefur verið á íslenskum landbúnaðarvörum en í venjulegu árferði. 9. nóvember 2020 11:30