Hylurinn er vikulegt hlaðvarp um veiði Karl Lúðvíksson skrifar 9. desember 2020 13:45 Rafn Valur er fyrsti gestur Sigþórs í hlaðvarpinu Hylurinn. Nú þegar veiðimenn eru farnir að telja niður dagana í næsta veiðitímabil er margt gert til að reyna stytta sér stundir og fyllast tilhlökkunar fyrir næsta veiðisumri.
Nú þegar veiðimenn eru farnir að telja niður dagana í næsta veiðitímabil er margt gert til að reyna stytta sér stundir og fyllast tilhlökkunar fyrir næsta veiðisumri. Eitt af því sem við ætlum bara klárlega að mæla með er hlaðvarpið hjá Sigþóri Stein Ólafssyni en hann hefur um árabil starfað sem leiðsögumaður auk þess að veiða öllum lausum stundum. Þetta er nýtt hlaðvarp hjá honum en Sigþór er líklega einn albesti silungsveiðimaður landsins og einn af okkar fremstu fluguhnýturum. Að tæknivinnslu þáttanna standa þeir Birkir Mar Harðarson og Vésteinn Þrymur Ólafsson. Báðir forfallnir veiðimenn. Í þessum fyrsta þætti spjallaðar hann við Rafn Val Alfreðsson, leigutaka Miðfjarðarár. Hann fór yfir sérstakt Covid sumar 2020, æskuna á Egilstöðum, veiðar um allan heim og margt fleira. Hylurinn kemur út vikulega bæði á YouTube sem og sem hefðbundið hlaðvarp á helstu veitur. Stefnt er á að hafa efnistök fjölbreytt en þó er yfirleitt einn eða fleiri gestir í hverri viku. Þú getur hlustað á þáttinn HÉR.
Stangveiði Mest lesið Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Veiði Lækkað verð á vatnasvæði Lýsu Veiði Er sumarflugan 2014 fundin? Veiði Fimm stórlaxar á hitch í Víðidalsá Veiði Ennþá góður reytingur í Ytri Rangá Veiði Ertu þú að henda laxi á hverju vori? Veiði Frábær veiði í Hlíðarvatni í gær Veiði Veiði að glæðast í Straumunum Veiði Flott opnun í Brunná og Sandá Veiði Batnandi útlit í Eyjafjarðará Veiði