Englandsmeistarar Liverpool komust í hann krappan þegar þeir heimsóttu nýliða Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Heimamenn virtust koma meisturunum í opna skjöldu í fyrri hálfleik þar sem þeir spiluðu afar vel úr sínum sóknarlotum og úr einni slíkri skoraði Bobby Reid á 25.mínútu.
Heimamenn voru ósáttir við að fá ekki vítaspyrnu þegar Fabinho virtist brjóta á Ivan Cavaleiro í fyrri hálfleik en dómari leiksins ákvað að dæma ekki neitt eftir að hafa skoðað atvikið í VAR.
Fulham hélt forystunni allt þar til á 79.mínútu þegar Mohamed Salah skoraði úr vítaspyrnu sem dæmd hafði verið eftir að Aboubakar Kamara handlék boltann þegar hann stóð í varnarvegg og varðist aukaspyrnu Gini Wijnaldum.
Fleiri urðu mörkin ekki og 1-1 jafntefli niðurstaðan í hörkuleik.