Cech fékk á sig mark eftir tvær mínútur í endurkomunni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. desember 2020 15:30 Petr Cech stóð á milli stanganna hjá varaliði Chelsea í gær og var að sjálfsögðu með hjálminn góða. getty/Justin Setterfield Petr Cech tók fram markmannshanskana og lék í marki varaliðs Chelsea gegn Tottenham í gær. Hann fékk á sig mark eftir aðeins tveggja mínútna leik.
Cech hætti í fótbolta vorið 2019. Síðasti leikur hans á ferlinum var fyrir Arsenal gegn Chelsea, gamla liðinu hans, í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Chelsea vann leikinn, 4-1. Eftir að hanskarnir fóru á hilluna byrjaði Cech að starfa fyrir Chelsea. Hann byrjaði hins vegar aftur að mæta á æfingar og var skráður í leikmannahóp Chelsea. Hinn 38 ára Cech spilaði svo sinn fyrsta leik í tæp tvö ár þegar varalið Chelsea og Tottenham mættust í gær. Eftir aðeins tvær mínútur komst Tottenham yfir eftir hornspyrnu sem Cech gaf á klaufalegan hátt. Spurs komst í 2-0 á 17. mínútu en Chelsea gafst ekki upp, kom til baka og vann 3-2 sigur. Danny Drinkwater, sem hefur verið úti í kuldanum hjá Chelsea undanfarna mánuði, var rekinn af velli fyrir að sparka í Alfie Devine, sextán ára leikmann Tottenham. Cech lék með Chelsea á árunum 2004-15. Hann vann allt sem hægt var að vinna á tíma sínum hjá félaginu.
Enski boltinn Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Naumur sigur dugði City Enski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Fleiri fréttir Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Sjá meira