Guðjón Valur Sigurðsson hefur spilaði sinn síðasta handboltaleik en hann hefur tekið þá ákvörðun að hætta að spila en síðasta tímabilið hans var með franska stórliðinu Paris Saint Germain.
Guðjón Valur hefur spilað lengur en flestir því hann verður 41 árs í haust. Hann fór út í atvinnumennsku árið 2001 og spilaði því í nítján ár sem atvinnumaður.
Guðjón Valur er markahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi og enginn hefur tekið þátt í fleiri stórmótum fyrir Íslands hönd. Fyrsti landsleikur hans var árið 1999 og Guðjón spilaði því með íslenska landsliðnu á þremur mismunandi áratugum.
Guðjón Valur skoraði alls 1879 mörk í 365 landsleikjum og á heimsmetið yfir flest mörk fyrir landslið. Hann er líka markahæsti leikmaður EM frá upphafi og varð markakóngur á HM í Þýskalandi 2007.
Guðjón Valur tók alls þátt í 22 stórmótum fyrir Íslands hönd og skoraði þar 701 mark í 138 leikjum sem er að sjálfsögðu allt met. Guðjón Valur var með á ellefu Evrópumótum, átta heimsmeistaramótum og þremur Ólympíuleikum.
Guðjón Valur var í silfurliði Íslands á ÓL í Peking 2008 sem og í bronsliðinu á EM í Austurríki 2010.
Guðjón Valur var þrisvar sinnum valinn í úrvalsliðið á stórmóti eða á Ólympíuleikunum í Peking og svo á Evrópumótunum 2012 og 2014.
Guðjón Valur hóf ferill sinn hjá Gróttu og spilaði síðan með KA áður en hann fór út í atvinnumennsku í Þýskalandi. Guðjón Valur hefur síðan spilað með mörgum af stærstu klúbbum heims eins og Kiel, Rhein Neckar Löwen, Barcelona og nú síðast Paris Saint Germain.
„Handboltinn hefur opnað mér heim sem fáum auðnast og ég hefði aldrei ímyndað mér að ég ætti eftir að upplifa þegar ég var ungur gutti í Gróttu. Það sem eftir lifir eru minningarnar, bæði þær sætu og þær sáru, og fólkið sem ég hef kynnst á leiðinni. Takk fyrir mig,“ skrifaði Guðjón Valur meðal annars í færslu sinni sem er bæði á íslensku og á ensku.
Guðjón Valur er enn af þeim fáu leikmönnum sem hafa náð því að skora yfir tvö þúsund mörk í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta sem er að flestum talin vera sú sterkasta og sú erfiðasta í heimi.
Guðjón Valur skoraði alls 2105 mörk í 459 leikjum í þýsku deildinni fyrir TuSEM Essen, VfL Gummersbach, Rhein-Neckar Löwen og THW Kiel.
Guðjón Valur varð alls sjö sinnum landsmeistari, fyrst með AG Kaupmannahöfn í Danmörku 2012 en svo tvisvar þýskur meistari með Kiel (2013, 2014), tvisvar spænskur meistari með Barcelona (2015, 2016), þýskur meistari með Rhein-Neckar Löwen (2017) og loks franskur meistari með Paris Saint-Germain (2020).
Guðjón Valur vann einnig Meistaradeildina með Barcelona (2015) og EHF-bikarinn með TUSEM Essen (2005).