Guðmundur gerir tvær breytingar á íslenska hópnum frá leiknum gegn Portúgal á sunnudaginn. Alexander Petersson kemur inn fyrir Kristján Örn Kristjánsson og Viktor Gísli Hallgrímsson tekur sæti Björgvins Páls Gústavssonar.
Alexander meiddist í fyrsta leiknum gegn Portúgal fyrir rúmri viku en snýr nú aftur í íslenska hópinn.
Auk Kristjáns Arnar og Björgvins verða Kári Kristján Kristjánsson og Magnús Óli Magnússon utan hóps í kvöld.
Leikur Íslands og Portúgals hefst klukkan 19:30 í kvöld og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Íslenski hópurinn
Markverðir:
- Ágúst Elí Björgvinsson, KIF Kolding 33/1
-
Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG 19/1
Aðrir leikmenn:
- Bjarki Már Elísson, Lemgo 73/180
- Oddur Gretarsson, Balingen-Weilstetten 20/31
- Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad 125/232
- Elvar Örn Jónsson, Skjern 37/103
- Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg 26/33
- Janus Daði Smárason, Göppingen 48/69
- Alexander Petersson, Rhein-Neckar Löwen 182/719
- Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg 49/133
- Viggó Kristjánsson, Stuttgart 13/26
- Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer HCC 116/338
- Sigvaldi Björn Guðjónsson, Vive Kielce 30/55
- Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen 54/69
- Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach 7/7
- Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen 44/20