Ísland varð að sætta sig við tap gegn Portúgal, 25-23, í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi, í þriðja leik liðanna á átta dögum.
Ísland tapaði þar með enn einu sinni fyrsta leik á HM en það hefur liðið gert á hverju heimsmeistaramóti eftir mótið 2011.
Elvar Örn Jónsson skoraði fyrsta mark Íslands á HM í ár strax úr fyrstu sókn, og íslenska liðið byrjaði leikinn af góðum krafti. Varnarleikurinn var feykilega öflugur og tvö mörk Portúgala á fyrstu tíu mínútunum komu bæði þegar vörnin var án Ýmis Arnar Gíslasonar, sem fékk tvær brottvísanir í fyrri hálfleiknum en náði þó að klára leikinn með bravör.

Eftir að Ísland hafði komist í 4-2 fór sóknarleikurinn að hiksta, og hann reyndist banabiti Íslands í leiknum. Fyrst fóru víti og dauðafæri í súginn, en svo tók við algjört frost um tíma og þrátt fyrir að vörn Íslands væri öflug gegnum allan fyrri hálfleikinn náðu Portúgalar smám saman yfirhöndinni.
Margt fór úrskeiðis en munurinn aðeins eitt mark í hálfleik
Ágúst Elí Björgvinsson hóf leikinn í marki Íslands og varði ekki skot í fyrri hálfleik, og lítið breyttist þegar Viktor Gísli Hallgrímsson kom inn í hans stað á 18. mínútu. Portúgal komst yfir í fyrsta sinn eftir 20 mínútna leik, og í 9-7 með tveimur auðveldum hraðaupphlaupum eftir misheppnaðar sendingar lágvaxinnar útilínu Íslands sem komst ekkert áleiðis á þessum kafla.

Guðmundur Guðmundsson tók svo leikhlé og hleypti Ólafi Guðmundssyni og Gísla Þorgeiri Kristjánssyni inn á. Þeir sköpuðu þrjú síðustu mörk Íslands sem þrátt fyrir sáralitla markvörslu og mjög stirðan sóknarleik á stórum köflum var aðeins einu marki undir í hálfleik, 11-10. Alfredo Quintana hafði þá varið 10 skot og reynst Íslandi erfiður eins og í fyrsta leik þríleiksins hjá liðunum á síðustu níu dögum.
Hriplek vörn í upphafi seinni hálfleiks
Viggó Kristjánsson og Sigvaldi Björn Guðjónsson komu inn á í upphafi seinni hálfleiks. Viggó tókst ekki að virkja hægri skyttustöðuna en Sigvaldi lét strax til sín taka. Portúgalar skoruðu hins vegar úr hverri sókninni á fætur annarri gegn hriplekri vörn Íslands og náðu fimm marka forskoti, 18:13.

Guðmundur tók þá leikhlé, hleypti Alexander Petersson og Ágústi Elí aftur inn á, með skilaboðum um leikkerfi fyrir Alexander sem skilaði árangri. Ágúst hrökk sömuleiðis í gang í markinu og munurinn fór strax niður í 18-16.
Alsír á laugardagskvöld
Þá tóku Portúgalar aftur við sér og leikstjórnandinn Miguel Martins var íslensku vörninni sérstaklega erfiður. Ísland fékk áfram tækifæri til að saxa á forskotið og hleypa mikilli spennu í leikinn en stóra vandamálið var of mörg mistök í sóknarleiknum og léleg færanýting. Varnarleikurinn í kvöld hefði hæglega átt að skila fleiri auðveldum mörkum.
Næsti leikur Íslands er gegn Alsír á laugardaginn en Alsír vann Marokkó fyrr í dag. Þrjú efstu liðin komast áfram í milliriðil og taka þangað hvert um sig með sér stig úr leikjum við hin tvö liðin sem fara þangað.
Nánari umfjöllun um leikinn kemur hér inn síðar í kvöld. Viðtöl, einkunnagjöf og frekari umfjöllun er væntanleg á Vísi.