Inter á toppinn Anton Ingi Leifsson skrifar 5. febrúar 2021 21:41 Það var létt yfir Inter mönnum í kvöld. Gabriele Maltinti/Getty Images Inter Milan er komið á topp ítölsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur á Fiorentina í kvöld. Sigurinn kemur Inter einum stigi fram úr grönnunum í AC. Alexis Sanchez var í byrjunarliði Inter og hann lagði upp fyrsta markið fyrir Nicolo Barella á 31. mínútu. Þannig stóðu leikar í hálfleik. Það var svo Króatinn Ivan Perisic sem tvöfaldaði forystuna á sjöundu mínútu síðari hálfleiks eftir undirbúning bakvarðarins Achraf Hakimi sem hefur leikið á alls oddi. Lokatölur 2-0 og Inter verður á toppnum, að minnsta kosti þangað til á sunnudag er AC mætir Crotone á heimavelli. Inter er með 47 stig en AC 46. Fiorentina er í tólfta sætinu með 22 stig. Three points on the road! 🛣️👌#FiorentinaInter 0⃣-2⃣#FORZAINTER ⚫️🔵 pic.twitter.com/OGfd3HYGVh— Inter (@Inter_en) February 5, 2021 Ítalski boltinn