Innlent

Verk­efna­stjóri segir skilið við Borgar­línuna: „Ó­teljandi skiptin sem ég hef heyrt að ég sé frek og vilji stjórna öllu“

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Lilja G. Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur, sagði skilið við Borgarlínuverkefnið um áramótin. Hún segir að viðhorf Vegagerðarinnar til samgangna í þéttbýli hafa leikið lykilþátt í ákvörðun hennar um að segja skilið við verkefnið.
Lilja G. Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur, sagði skilið við Borgarlínuverkefnið um áramótin. Hún segir að viðhorf Vegagerðarinnar til samgangna í þéttbýli hafa leikið lykilþátt í ákvörðun hennar um að segja skilið við verkefnið. Vísir

Lilja G. Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur, sagði skilið við Borgarlínuverkefnið um áramótin. Hún segir að viðhorf Vegagerðarinnar til samgangna í þéttbýli hafa leikið lykilþátt í ákvörðun hennar um að segja skilið við verkefnið.

Lilja greinir frá þessu á Twitter en þar rekur hún sögu Borgarlínunnar og aðkomu sína að verkefninu. Hún segir að árið 2006 hafi í fyrsta skipti vaknað hugmynd hjá henni, Samúel Torfa Péturssyni skipulagsverkfræðingi og Þorsteini R. Hermannssyni, samgöngustjóra Reykjavíkurborgar, um borgarlínukerfi á höfuðborgarsvæðinu.

Það hafi svo ekki verið fyrr en árið 2013 sem þau fóru að ræða málið af alvöru þegar hún og Þorsteinn hófu að starfa saman við svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins þar sem hugmyndir um Borgarlínu fæddust. Mikil vinna hafi þá farið af stað og í janúar 2019 var Lilja ráðin sem verkefnastjóri Borgarlínu fyrir hönd Reykjavíkurborgar.

Stuttu síðar var verkefnastofa stofnuð utan um verkefnið og segir hún að í kjölfarið hafi hún og fleiri drukknað í vinnu við að ýta verkefninu áfram með fagleg sjónarmið að leiðarljósi.

Ekki undirbúin fyrir stofnanapólitíkina og valdataflið

„Ég var farin að venjast pólitíska þrasinu í fjölmiðlum frá þeim sem fundu allt að verkefninu. Fagleg sjónarmið hafa alltaf verið mitt leiðarljós en ég viðurkenni að hafa stundum misst þolinmæðina þegar fólk með enga reynslu af almenningssamgöngum var að væna mann um annarleg sjónarmið,“ skrifar Lilja á Twitter.

Hún segist hins vegar ekki hafa verið undirbúin fyrir stofnanapólitíkina og valdataflið sem hófst þegar verkefnastofu Borgarlínunnar var fundinn staður hjá Vegagerðinni.

„BL er ný tegund verkefnis í íslenskum veruleika og við þurftum því að brjóta niður múra í hverju einasta atriði sem þurfti að vinna,“ skrifar hún.

Skammvinnur sigur

Hún segir að allir verkþættir sem vinna þurfti hafi verið dregnir í efa og reynt hafi verið að tefja þá.

„Fram til vorsins 2020 fékk maður reglulega viðvaranir um að haga sér, því annars yrði verkefnið stöðvað. Vorið 2020 var Borgarlínan engu að síður samþykkt og komst á Samgönguáætlun.“

Stuttu síðar var fyrirtækið Betri samgöngur stofnað til þess að halda utan um öll samgönguverkefni á höfuðborgarsvæðinu næstu 15 árin og segir hún það hafa verið ótrúlegan sigur. Hann hafi hins vegar verið skammvinnur.

„Þegar pólitíkin ákvað að nýja fyrirtækið væri bara hugsað sem fjármögnunarverkefni og gert ráð fyrir að Vegagerðin ætti að stýra Borgarlínuverkefninu næstu 15 árin. Þarna varð vonin hjá mér um sameiginlegan stað til að upphefja verkefni úr sílóum og þrasi að engu.“

Yfirleitt stjórnendur með enga reynslu af almenningssamgöngum sem létu slæm orð falla

Hún segir að sumarið 2020 hafi hún áttað sig á því að hún gæti aldrei þrifist innan Vegagerðarinnar.

„Ég benti á að það væri skrítið að láta stofnun sem hefur engan áhuga sýnt á samgöngum í þéttbýli taka að sér stærsta skipulags- og byggðarþróunarverkefni allra tíma á Íslandi,“ skrifar Lilja.

Hún segir að hún hafi í óteljandi skipti fengið að heyra að hún væri frek, tæki hlutunum nærri sér og vildi stjórna öllu. Hún segir þessi orð hins vegar yfirleitt hafa komið frá stjórnendum með enga reynslu af almenningssamgöngum.

„Ég kýs að kalla sjáfa mig ákveðna, með skýra sýn og mikla þekkingu á málaflokknum sem ég vinn við. Það að aðrir kunni ekki að meta það er ekki mitt vandamál. Þegar ég lít tilbaka er ég stolt af því sem hefur áorkast.“


Tengdar fréttir

Borgarlína og Sundabraut lifi góðu lífi saman

Borgarlínan og Sundabraut geta vel þrifist saman að mati forstjóra Vegagerðarinnar. Tillögur að Borgarlínu og Sundabrautinni gera báðar ráð fyrir nýjum brúm, sem myndu þvera Kleppsvík og Elliðaárvog.

Davíð Þorláksson nýr framkvæmdastjóri Betri samgangna

Davíð Þorláksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri opinbera hlutafélagsins Betri samgangna. Þetta kemur fram í tilkynningu. Stofnað var til Betri samgangna til að hrinda í framkvæmd uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×