Síðasta sambærilega dæmið frá 2007 og þá stóðu úrslitin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. febrúar 2021 11:31 Stjarnan er í 4. sæti Olís-deildar kvenna með tíu stig eftir níu leiki. vísir/vilhelm Kæra handknattleiksdeildar Stjörnunnar á úrslitum í leik gegn KA/Þór í Olís-deild kvenna á laugardaginn er komin inn á borð dómstóls HSÍ. KA/Þór vann leikinn, 26-27, en mistök á ritaraborði urðu til þess að eitt marka liðsins var oftalið. Síðasta sambærilega dæmið um að úrslit hafi verið kærð vegna rangrar skráningar marka er frá 2007. KA/Þór tyllti sér á topp Olís-deildar kvenna með sigrinum á Stjörnunni á laugardaginn. Leikurinn endaði 26-27 en KA/Þór skoraði aðeins 26 mörk. Mistök voru gerð á ritaraborðinu í fyrri hálfleik þar sem skráð voru átján mörk en ekki sautján á KA/Þór. Handbolti.is greindi fyrst frá. Þegar Thelma Sif Sófusdóttir minnkaði muninn fyrir Stjörnuna í 12-17 var markið skráð á KA/Þór á leikklukkuna, 11-18. Stjarnan fékk seinna tólfta markið skráð á sig en það gleymdist hins vegar að taka átjánda markið af KA/Þór. Staðan í hálfleik var því 12-18 en átti að vera 12-17. Í gær barst fréttatilkynning frá Stjörnunnar um að stjórn handknattleiksdeildar félagsins hefði kært framkvæmd leiksins og farið fram á að úrslitunum yrði breytt í jafntefli, 26-26. „Málið var kært til dómstóls HSÍ og aðilar að því fyrir Stjörnuna eru HSÍ og KA/Þór. Þeim aðilum er gefinn frestur til seinni parts vikunnar til að skila inn greinargerð. Svo tekur dómstóllinn málið fyrir,“ sagði Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, í samtali við Vísi í dag. Hann vonast til að niðurstaða liggi fyrir í næstu viku en vill ekki spá fyrir um hana, hvort úrslitunum verði breytt eða þau látin standa. „Ég get ekkert spáð fyrir um það. Það er dómstólsins að fjalla um og komast að niðurstöðu,“ sagði Róbert. Úrslit stóðu þrátt fyrir tvískráð mark Hann segir að síðasta sambærilega fordæmið sé frá því fyrir tæpum þrettán árum. Þá kærðu Haukar úrslit í leik gegn Fram í úrslitum deildabikars HSÍ 29. desember 2007. Fram vann leikinn, 30-28, en mark var tvískráð á liðið í upphafi leiks. Haukar töldu að þessi mistök hefðu haft afgerandi áhrif á þróun leiksins og bein áhrif á úrslit hans. Þeir fóru fram á að úrslitin yrðu ógild og leikurinn spilaður aftur. Í dómnum, sem er frá 11. mars 2008, segir að mistök hafi verið gerð við skráningu marka en mistök af þessu tagi væru hluti af leiknum og aldrei hægt að komast hjá þeim. Beiðni Hauka var því hafnað og úrslitin stóðu. Í niðurstöðukafla dómsins segir: Ljóst er að mistök voru gerð við skráningu marka í úrslitaleik deildarbikarkeppni HSÍ sem leikinn var þann 29.12.07, með þeim hætti að mark var tvískráð á Fram í upphafi leiks, ca. á 10 – 12 mínútu fyrri hálfleiks. Skv. grein 17.9 í leikreglum HSÍ eru dómarar ábyrgir fyrir skráningu marka. Það er niðurstaða dómsins að mistökin séu á ábyrgð dómara leiksins, og séu því hluti af leiknum í heild. Ekki sé hægt að skilja á milli dómara og tímavarða, þannig að líta megi þannig á að mistök tímavarða við skráningu geti valdið því að úrslit leiks verði ógidlanleg. Mistök af þessu tagi eru hluti leiksins, og á ábyrgð dómara. Aldrei er hægt að komast hjá mannlegum mistökum í leikjum, og ekki er hægt að flokka mistök sérstaklega eftir tegund eða eðli, þannig að ein tegund mistaka geti valdið því að úrslit 3 3 leiks geti verið ógildanleg, frekar en önnur mistök sem dómarar gera. Ákvörðun dómara í hverjum leik eru endanleg og ekki kæranleg, af hvaða toga sem þau mistök geta verið. Mistök dómara geta að sjálfsögðu haft áhrif á þróun leikja, á hvaða tíma leiks sem er. Mistök dómara, sem og leikmanna og annarra sem að leik koma eru hluti leiksins, og hafa því öll atvik leiks áhrif á þróun og úrslit leikja. Það er því mat dómsins að hafna beri kröfu Hauka um að úrslitaleikur karla í deildarbikarkeppni HSÍ sem leikinn var þann 29.12.07 verði endurleikinn og að úrslitin verði ógilt. Lesa má dóminn með því að smella hér. Mótanefnd skoðar framkvæmdina Róbert segir liggja fyrir að framkvæmd leiksins hafi ekki verið eins og best verður á kosið. Það sé hins vegar mál mótanefndar HSÍ. „Það er ljóst að framkvæmdin var ekki á þann hátt sem við viljum sjá. Klukkan bilaði og fleira í þessum leik. Það er í raun mál sem mótanefnd tekur fyrir og fjallar um, framkvæmdina sem slíka. En hvað leikniðurstöðuna varðar er það mál hjá dómstólnum,“ sagði Róbert. Enginn eftirlitsmaður Ekki er eftirlitsmaður á öllum leikjum í Olís-deildum karla og kvenna og sú var raunin í leiknum í Garðabænum á laugardaginn. „Það eru ekki eftirlitsdómarar á öllum leikjum og félögin hafa frekar hvatt til þess að þeim yrði fækkað en fjölgað,“ sagði Róbert og bætti við að ólíklegra væri að mistökin á ritaraborðinu á laugardaginn hefðu átt sér stað ef eftirlitsmaður hefði verið á leiknum. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Olís-deild kvenna Stjarnan KA Þór Akureyri Mest lesið Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Enski boltinn Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Fótbolti Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Körfubolti Popovich fékk heilablóðfall Körfubolti Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Fótbolti Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Enski boltinn Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Handbolti Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? Handbolti Fleiri fréttir „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Sjá meira
KA/Þór tyllti sér á topp Olís-deildar kvenna með sigrinum á Stjörnunni á laugardaginn. Leikurinn endaði 26-27 en KA/Þór skoraði aðeins 26 mörk. Mistök voru gerð á ritaraborðinu í fyrri hálfleik þar sem skráð voru átján mörk en ekki sautján á KA/Þór. Handbolti.is greindi fyrst frá. Þegar Thelma Sif Sófusdóttir minnkaði muninn fyrir Stjörnuna í 12-17 var markið skráð á KA/Þór á leikklukkuna, 11-18. Stjarnan fékk seinna tólfta markið skráð á sig en það gleymdist hins vegar að taka átjánda markið af KA/Þór. Staðan í hálfleik var því 12-18 en átti að vera 12-17. Í gær barst fréttatilkynning frá Stjörnunnar um að stjórn handknattleiksdeildar félagsins hefði kært framkvæmd leiksins og farið fram á að úrslitunum yrði breytt í jafntefli, 26-26. „Málið var kært til dómstóls HSÍ og aðilar að því fyrir Stjörnuna eru HSÍ og KA/Þór. Þeim aðilum er gefinn frestur til seinni parts vikunnar til að skila inn greinargerð. Svo tekur dómstóllinn málið fyrir,“ sagði Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, í samtali við Vísi í dag. Hann vonast til að niðurstaða liggi fyrir í næstu viku en vill ekki spá fyrir um hana, hvort úrslitunum verði breytt eða þau látin standa. „Ég get ekkert spáð fyrir um það. Það er dómstólsins að fjalla um og komast að niðurstöðu,“ sagði Róbert. Úrslit stóðu þrátt fyrir tvískráð mark Hann segir að síðasta sambærilega fordæmið sé frá því fyrir tæpum þrettán árum. Þá kærðu Haukar úrslit í leik gegn Fram í úrslitum deildabikars HSÍ 29. desember 2007. Fram vann leikinn, 30-28, en mark var tvískráð á liðið í upphafi leiks. Haukar töldu að þessi mistök hefðu haft afgerandi áhrif á þróun leiksins og bein áhrif á úrslit hans. Þeir fóru fram á að úrslitin yrðu ógild og leikurinn spilaður aftur. Í dómnum, sem er frá 11. mars 2008, segir að mistök hafi verið gerð við skráningu marka en mistök af þessu tagi væru hluti af leiknum og aldrei hægt að komast hjá þeim. Beiðni Hauka var því hafnað og úrslitin stóðu. Í niðurstöðukafla dómsins segir: Ljóst er að mistök voru gerð við skráningu marka í úrslitaleik deildarbikarkeppni HSÍ sem leikinn var þann 29.12.07, með þeim hætti að mark var tvískráð á Fram í upphafi leiks, ca. á 10 – 12 mínútu fyrri hálfleiks. Skv. grein 17.9 í leikreglum HSÍ eru dómarar ábyrgir fyrir skráningu marka. Það er niðurstaða dómsins að mistökin séu á ábyrgð dómara leiksins, og séu því hluti af leiknum í heild. Ekki sé hægt að skilja á milli dómara og tímavarða, þannig að líta megi þannig á að mistök tímavarða við skráningu geti valdið því að úrslit leiks verði ógidlanleg. Mistök af þessu tagi eru hluti leiksins, og á ábyrgð dómara. Aldrei er hægt að komast hjá mannlegum mistökum í leikjum, og ekki er hægt að flokka mistök sérstaklega eftir tegund eða eðli, þannig að ein tegund mistaka geti valdið því að úrslit 3 3 leiks geti verið ógildanleg, frekar en önnur mistök sem dómarar gera. Ákvörðun dómara í hverjum leik eru endanleg og ekki kæranleg, af hvaða toga sem þau mistök geta verið. Mistök dómara geta að sjálfsögðu haft áhrif á þróun leikja, á hvaða tíma leiks sem er. Mistök dómara, sem og leikmanna og annarra sem að leik koma eru hluti leiksins, og hafa því öll atvik leiks áhrif á þróun og úrslit leikja. Það er því mat dómsins að hafna beri kröfu Hauka um að úrslitaleikur karla í deildarbikarkeppni HSÍ sem leikinn var þann 29.12.07 verði endurleikinn og að úrslitin verði ógilt. Lesa má dóminn með því að smella hér. Mótanefnd skoðar framkvæmdina Róbert segir liggja fyrir að framkvæmd leiksins hafi ekki verið eins og best verður á kosið. Það sé hins vegar mál mótanefndar HSÍ. „Það er ljóst að framkvæmdin var ekki á þann hátt sem við viljum sjá. Klukkan bilaði og fleira í þessum leik. Það er í raun mál sem mótanefnd tekur fyrir og fjallar um, framkvæmdina sem slíka. En hvað leikniðurstöðuna varðar er það mál hjá dómstólnum,“ sagði Róbert. Enginn eftirlitsmaður Ekki er eftirlitsmaður á öllum leikjum í Olís-deildum karla og kvenna og sú var raunin í leiknum í Garðabænum á laugardaginn. „Það eru ekki eftirlitsdómarar á öllum leikjum og félögin hafa frekar hvatt til þess að þeim yrði fækkað en fjölgað,“ sagði Róbert og bætti við að ólíklegra væri að mistökin á ritaraborðinu á laugardaginn hefðu átt sér stað ef eftirlitsmaður hefði verið á leiknum. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Ljóst er að mistök voru gerð við skráningu marka í úrslitaleik deildarbikarkeppni HSÍ sem leikinn var þann 29.12.07, með þeim hætti að mark var tvískráð á Fram í upphafi leiks, ca. á 10 – 12 mínútu fyrri hálfleiks. Skv. grein 17.9 í leikreglum HSÍ eru dómarar ábyrgir fyrir skráningu marka. Það er niðurstaða dómsins að mistökin séu á ábyrgð dómara leiksins, og séu því hluti af leiknum í heild. Ekki sé hægt að skilja á milli dómara og tímavarða, þannig að líta megi þannig á að mistök tímavarða við skráningu geti valdið því að úrslit leiks verði ógidlanleg. Mistök af þessu tagi eru hluti leiksins, og á ábyrgð dómara. Aldrei er hægt að komast hjá mannlegum mistökum í leikjum, og ekki er hægt að flokka mistök sérstaklega eftir tegund eða eðli, þannig að ein tegund mistaka geti valdið því að úrslit 3 3 leiks geti verið ógildanleg, frekar en önnur mistök sem dómarar gera. Ákvörðun dómara í hverjum leik eru endanleg og ekki kæranleg, af hvaða toga sem þau mistök geta verið. Mistök dómara geta að sjálfsögðu haft áhrif á þróun leikja, á hvaða tíma leiks sem er. Mistök dómara, sem og leikmanna og annarra sem að leik koma eru hluti leiksins, og hafa því öll atvik leiks áhrif á þróun og úrslit leikja. Það er því mat dómsins að hafna beri kröfu Hauka um að úrslitaleikur karla í deildarbikarkeppni HSÍ sem leikinn var þann 29.12.07 verði endurleikinn og að úrslitin verði ógilt.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild kvenna Stjarnan KA Þór Akureyri Mest lesið Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Enski boltinn Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Fótbolti Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Körfubolti Popovich fékk heilablóðfall Körfubolti Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Fótbolti Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Enski boltinn Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Handbolti Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? Handbolti Fleiri fréttir „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Sjá meira