Sagan á bak við nafnið er sennilega vel kunn mörgum Eyjamönnum en síður öðrum. Á vefnum Aflafréttir má lesa að alls hafi sjö bátar borið þetta nafn allt frá árinu 1924. Það ár keypti útgerðarmaðurinn Jón Jónson í Hlíð 27 tonna bát frá Noregi og gaf honum nafnið Kap eftir elstu dóttur sinni, sem hét Þuríður Kapítóla en var ætíð kölluð Kap.

„Ég leit alltaf á hana sem ömmu mína. Kap var Amma, með stórum staf, mín og okkar systkina,“ segir Þyri Kap Árnadóttir í samtali við Vísi í dag en hún er dóttir Árna Guðmundssonar, sem var fóstursonur Þuríðar Kapítólu.

„Pabbi hennar var útgerðarmaður og ól með sér skáldadrauma. Hann las bókina Kapítóla og var svo heillaður af söguhetjunni að hann ákvað að ef hann eignaðist dóttur þá myndi hann skíra hana eftir henni. Konan hans var jarðbundnari og hún vildi nafnið Þuríður.
Þuríðarnafnið var aldrei notað og gleymdist alveg. Hún var aldrei kölluð neitt annað en Kap. Sjálf vildi hún aldrei nota annað en nafnið Kap, eins og söguhetjan í bókinni,“ segir Þyri Kap, sem einnig er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum.
Þuríður Kapítóla var elsta barn útgerðarmannsins en hún var fædd árið 1905. Hún var gift Jóni Þorleifssyni bifreiðarstjóra. Þeim hjónum varð ekki barna auðið en ólu upp frænda hennar, Árna Guðmundsson. Árni skírði dóttur sína Þyri Kap í höfuðið á fóstru sinni.
„Nafnið Kap er mér mjög kært. Við erum fjórar sem heitum Kap en mannanafnanefnd viðurkennir ekki nafnið þar sem við erum of fáar. Nafnið Þyri hef ég heyrt að hafi verið notað sem stytting á Þuríður,“ segir Þyri Kap.

Á Eyjavefnum Heimaslóð er minningargrein sem Þorsteinn Þ. Víglundsson skólastjóri ritaði um Kapítólu Jónsdóttur en hún lést árið 1961, 55 ára gömul.
„Í daglegri önn og samskiptum nefndu Eyjabúar hana gælunafninu Kap,“ segir Þorsteinn.

„Vinnuhugurinn, eljan og atorkan voru ríkar eigindir í skapgerð og sálarlífi Kapítólu Jónsdóttur. Það leit helzt út fyrir, að hún ynni sér aldrei hvíldar. Og öll hennar störf voru innt af hendi af frábærri samvizkusemi og alúð, ósérhlífni og skyldurækni.
Um þetta get ég borið persónulega, þar sem hún var starfsmaður Gagnfræðaskólans í 9 ár, ræsti hann daglega, meðan starfað var hvert ár. Það starf innti hún af hendi af frábærum mannkostum og trúmennsku,“ segir í minningargrein Þorsteins skólastjóra frá árinu 1962.
Skáldsagan um Kapítólu Black er eftir bandaríska rithöfundinn Emmu Southworth. Sagan var fyrst gefin út árið 1859 og fjallar um frakka og klára götustelpu í New York, að því er fram kemur á vef Forlagsins, sem endurútgaf bókina fyrir þremur árum. Þar segir að Íslendingar hafi kynnst Kapítólu fyrst sem framhaldssögu í Heimskringlu á árunum 1896–1897 og síðan hafi hún komið út mörgum sinnum hér á landi.
„Hér á landi varð Kapítóla innblástur og fyrirmynd þriggja kynslóða kvenna sem lærðu af henni sjálfstæði, hvatvísi, hugrekki og staðfestu,“ segir í ritdómi Steingerðar Steinarsdóttur, sem Forlagið vitnar til.
Hér má sjá þegar fyrstu loðnunni var landað úr Kap í vikunni: