Styttist í að veiðin hefjist Karl Lúðvíksson skrifar 3. mars 2021 10:31 Sjóbirtingur Nú styttist hratt í að stangveiðitímabilið hefjist á nýjan leik en að venju er fyrsti veiðidagurinn á hverju ári 1. apríl.
Nú styttist hratt í að stangveiðitímabilið hefjist á nýjan leik en að venju er fyrsti veiðidagurinn á hverju ári 1. apríl. Vorveiðin nýtur sífellt meiri vinsælda og liggur straumur veiðimanna í sjóbirtingsveiði á þessum tíma en þegar lengra líður á apríl er mikið sótt í stóra urriðann og þar nýtur Þingvallavatn mikilla vinsælda. Sjóbirtingssvæðin í frá Varmá að ánum við Skaftá eru mikið sótt og þarna á milli mikið af spennandi veiðisvæðum. Fyrir norðan er Litlaá í Keldum eitt af vinsælustu svæðunum en það eru þó fleiri svæði að koma sterk þar inn á vorinn og þar má sem dæmi nefna Hörgá sem geymir stærri stofn af sjóbirting en menn áttu von á en veiði hefst að vísu ekki þar fyrr en 1. maí. Veiðimenn sitja því ansi spenntir yfir veiðidótinu þessa dagana og eru að gera klárt fyrir tímabil sem vonandi verður gott. Nokkur vötn opna líka fyrir veiði 1. apríl en vatna veiðin fer yfirleitt ekki á fullt fyrr en í byrjun maí.
Stangveiði Mest lesið Lækkað verð á vatnasvæði Lýsu Veiði Laxveiðin 2011 - Bráðabirgðatölur Veiði Fimmta tölublað Veiðislóðar komið út Veiði Of mikið veitt í Soginu Veiði Veiði að glæðast í Straumunum Veiði Rjúpusnafsinn ómissandi hjá mörgum Veiði Er sumarflugan 2014 fundin? Veiði Flott opnun í Brunná og Sandá Veiði Tilkynning frá SVFR vegna Hítará Veiði Opið fyrir umsóknir hjá SVFR Veiði