Rosalegt flautu-sirkusmark tryggði lærisveinum Erlings sigur Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. mars 2021 19:50 Erlingur á hliðarlínunni í kvöld. EPA-EFE/MACIEJ KULCZYNSKI Holland vann eins nauman eins marks sigur á Póllandi í undankeppni EM í handbolta og hægt er. Lokatölur 27-26 en Holland skoraði eitt svakalegasta sigur-sirkusmark sem hefur sést. Markið má sjá hér að neðan.
Leikur Póllands og Hollands í dag var frábær skemmtun og einkar jafn frá upphafi til enda. Jafnt var á öllum tölum í fyrri hálfleik en staðan 11-11 er liðin gengu til búningsherbergja. Í síðari hálfleik var áfram jafnt á öllum tölum, það er þangað til í lokasókninni. Staðan var jöfn 26-26 þegar Holland átti hreint út sagt stórkostlega útfærða sókn sem endaði með ótrúlegu sirkusmarki í þann mund er leiktíminn rann út. Lokatölur í kvöld 27-26 Hollandi í vil. Þeirra markahæsti maður var Kay Smits með tíu mörk en Luc Steins gerði sjö. Erlingur Richardsson er sem fyrr þjálfari Hollands. Are you serious???The Netherlands handball team just put themselves within reach of EHF Euro with one of the most ridiculous buzzer beaters ever! #handball pic.twitter.com/ojjcYZ0NRH— (Un)informed Handball Hour (@HandballHour) March 14, 2021 Holland er nú með fimm stig, líkt og Slóvenía en liðin eru jöfn á toppi riðilsins. Þar á eftir kemur Pólland með fjögur stig og Tyrkland er svo með þrjú stig. Slóvenía og Tyrkland eiga enn eftir að mætast í fjórðu umferð undankeppninnar. Að þeim leik loknum eru tvær umferðir eftir. Þar mætast Holland og Pólland á nýjan leik sem og lærisveinar Erlings eiga eftir útileik í Tyrklandi. Tvö stig í þessum tveimur leikjum myndu að öllum líkindum gulltryggja sæti Hollands á EM 2022 en mótið fer fram í Ungverjalandi og Slóvakíu að þessu sinni.
Handbolti EM 2022 í handbolta Mest lesið Hættur aðeins þrítugur Golf Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Fótbolti Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Sjá meira