Garðar, sem kemur fram undir sviðsnafninu Son of Henry, er ekki að taka sín fyrstu spor í tónlistinni því áður fyrr söng hann í hljómsveitinni URL á árunum 1998 til 2003. Hann er hinsvegar búinn að vera nánast í fríi frá tónlistinni síðan þá en dustaði rykið af hljóðnemanum síðastliðið sumar þegar hann hóf að smíða sína fyrstu sólóplötu.
Platan It´s Just Me, sem eingöngu er hægt að nálgast á streymisveitum eins og Spotify, fjallar að stórum hluta um Parkinson-sjúkdóminn sem Garðar greindist með fyrir um fjórum árum síðan.
Sjá nánar: Garðar Örn: Var orðinn þreyttur á að ljúga

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.