Stundin birtir skilaboðin og greinir frá því að Róbert hafi sent fyrrverandi samstarfsmönnum sínum, Mark Keatly og Claudio Albrecht, samtals 33 skilaboð á innan við sólarhring og hótað bæði þeim og fjölskyldum þeirra. Þar segir meðal annars: „Segðu halló til claudio ég mun ganga frá ykkur lygara skíthællinn þinn“ og „Bottomlænið er að þú ert dauður ég lofa.“
Hönd í hönd með hundruð milljóna í laun
Skilaboðin eru birt í kjölfar ásakana sem hafa gengið á víxl milli Róberts og Halldórs Kristmannssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins, sem nýverið var sagt upp störfum í kjölfar ágreinings þeirra á milli. Róbert og Halldór hafa starfað hönd í hönd hjá stórfyrirtækjunum Alvotech og Alvogen í átján ár með hundruð milljóna í árslaun.

Róbert hefur ekki viljað tjá sig þegar eftir því hefur verið leitað en nýr upplýsingafulltrúi hans, Lára Ómarsdóttir, segir Róbert hafa beðist afsökunar á umræddum skilaboðum.
„Hann var í flugvél þegar hann sendi þessi skilaboð út af þessu dómsmáli, dómsmáli sem Róbert vann svo. Þessir menn höfðu borið vitni í málinu og Róbert reiddist yfir því og sendi skilaboðin – sem eru ósæmileg í alla staði – en hann hafði strax samband símleiðis og baðst strax afsökunar, og baðst svo aftur afsökunar bréfleiðis með formlegu afsökunarbréfi,“ segir Lára í samtali við fréttastofu. Aðspurð um deilurnar á milli Róberts og Halldórs sagðist hún ekki geta tjáð sig um það.
Munnhöggvast með yfirlýsingum
Í yfirlýsingu sem Halldór sendi frá sér í morgun er Róbert borinn þungum sökum. Þar lýsir Halldór líflátshótunum, líkamsmeiðingum og ógnunum um árabil á hendur sér og „óvildarmönnum“ Róberts sem Halldór segir að séu meðal annars háttsettir embættismenn, blaðamaður og alþjóðlegur fjárfestir. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að blaðamaðurinn sé Björn Ingi Hrafnsson sem gaf út DV, Pressuna og Eyjuna sem var í eigu Róberts, og að fjárfestirinn sé Björgólfur Thor Björgólfsson, en Björgólfur og Róbert hafa eldað grátt silfur um langt skeið.
Halldór hefur engar upplýsingar viljað gefa, hvorki upplýsa um nöfn meintra óvildarmanna né hvers eðlis hótanirnar voru eða hvort þær hafi verið kærðar til lögreglu.

Róbert svaraði ásökunum kollega síns með yfirlýsingu um að Halldór sé með ásökununum að reyna að hafa af sér fé. Róbert hefur hins vegar ekki svarað síma það sem af er degi en upplýsingafulltrúi hans, Lára, veitir engar upplýsingar um málið að öðru leyti en að hafna öllum ásökunum.
Fer fram á endurráðningu
Í samtali við fréttastofu sagðist Halldór ekki vilja tjá sig en tók það fram að hann hefði enga fjárkröfu gert á fyrirtækin. Hann hafi hins vegar áskilið sér rétt að gera það á hendur Róberti persónulega í ljósi framkomu hans gagnvart sér í starfi – þó engar slíkar ákvarðanir hafi verið teknar. Hann vísaði í framhaldinu alfarið á yfirlýsingu sína síðan í morgun.
Þá hefur fréttastofa heimildir fyrir því að Halldór hafi lagt fram tillögu til stjórna fyrirtækjanna að hann yrði endurráðinn til fyrirtækisins og að Róbert verði látinn víkja. Í skiptum muni hann ekki leggja fram fjárkröfu líkt og hann hafi áskilið sér að gera. Tillögunni var hafnað.