Viðskipti innlent

Forstjóri Play: „Þetta verður erfitt, flókið og hratt“

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segist aldrei hafa verið eins spenntur fyrir neinu á ævinni.
Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segist aldrei hafa verið eins spenntur fyrir neinu á ævinni. Vísir/Íslandspóstur

Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segist aldrei hafa verið „eins spenntur fyrir neinu á ævinni og tækifærinu sem Play hefur til að ná árangri.“ Félagið býr sig nú undir að hefja starfsemi og er um þessar mundir meðal annars auglýst eftir framkvæmdastjórum fjármálasviðs og sölu- og markaðssviðs.

Birgir deilir atvinnuauglýsingu um störfin tvö á Facebook í dag þar sem hann lýsir spenningi sínum um leið. „Það er einhver sérstök orka sem umlykur fólkið sem vinnur nú hjá fyrirtækinu og fólkinu sem hefur fjárfest í því. Ótrúlegur metnaður og hungur í árangur. Rosalegur kraftur,“ skrifar Birgir um leið og hann viðurkennir að erfitt verkefni sé fyrir höndum.

„Þetta verður erfitt, flókið og hratt. En djöfull sem þetta verður gaman,“ skrifar Birgir. „Það er gríðarlegur heiður fyrir mig að fá að leiða þennan hóp og einhvernveginn finnst mér að allt sem ég hef gert hingað til hafi verið uppbygging að þessu verkefni.“


Tengdar fréttir

Birgir Jónsson nýr forstjóri Play

Birgir Jónsson hefur verið kynntur til sögunnar sem forstjóri flugfélagsins Play. Hann staðfestir ráðninguna við fréttastofu. Túristi og Fréttablaðið greindu fyrst frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×