Veiði

Strengir framlengja um 10 ár í Jöklu

Karl Lúðvíksson skrifar
Hólaflúð í Jöklu en þetta hefur verið einn besti staðurinn í ánni 
Hólaflúð í Jöklu en þetta hefur verið einn besti staðurinn í ánni 

Jökla er ein af þeim veiðiám landsins sem nýtur sífellt meiri vinsælda og veiðin í ánni er að aukast með hverju árinu.

Veiðiþjónustan Strengir hefur verið með Jöklu frá því að skipulögð stangveiði hófst í ánni og hefur uppibyggingarstarf þar verið í höndum þeirra undir forystu Þrastar Elliðasonar. Búið er að gera frábæra aðstöðu fyrir veiðimenn í veiðihúsum sem voru byggð fyrir nokkrum árum og veiðin í ánni sem og hliðarám verið vaxandi, þó mest í Jöklu. 

Þann 24. apríl var gengið frá framlengingu á samningi milli Strengja og Veiðifélags Jökulsár á Dal (Jöklu) til ársins 2031 eða í 10 ár! Samstarfið hefur verið gott og nú er Jöklusvæðið orðið eitt besta laxveiðisvæði landsins eftir áralanga uppbyggingu og laxastofn árinnar er í mikilli sókn. Má nefna að ráðist verður í stækkun og endurbætur á Veiðihúsinu Hálsakoti og einnig verða seiðasleppingar stórauknar í hliðarám Jöklu til að tryggja betur veiði þar allt sumarið.

Aðsókn í Jöklu hefur verið með besta móti og svo komið að þeir sem ætla að tryggja sér daga þar í sumar þurfa líklega að hafa hraðar hendur því eftirspurn eftir leyfum er mikil.






×