„Það verður gengið frá því í dag að 2.500 störf fara í auglýsingu, það er sem sagt búið að skapa þessi 2.500 störf. Þau munu skiptast niður á sveitarfélög, opinberar stofnanir, frjáls félagasamtök, sem er í fyrsta skipti, og síðan líka störf fyrir iðnnema vegna þess að þeim hefur gengið erfiðlega við að fá samninga,“ sagði Ásmundur Einar eftir ríkisstjórnarfund í dag.
Alls hafa 8.700 störf verið skráð í átakinu, 1.700 störfum meira en stefnt var að, og hafa aldrei jafn mörg störf borist til vinnumiðlunar áður.
„Það er gríðarlega ánægjulegt. Síðan erum við tilbúin til þess að ef fyllist í þessi sumarstörf munum við fara strax, þegar líður nær mánaðamótum, að skapa fleiri störf af því að markmiðið er að skapa störf fyrir alla þá námsmenn sem þarfnast vinnu í sumar,“ segir Ásmundur.
Með hverjum námsmanni, 18 ára og eldir, sem ráðinn er til starfa með úrræðinu fylgir styrkur sem nemur fullum dagvinnulaunum samkvæmt gildandi kjarasamningum. Ráðningatímabilið eru tveir og hálfur mánuður og hefur Vinnumálastofnun opnað fyrir umsóknir á þeim störfum sem stofnunin auglýsir.
„Fjöldinn er metinn miðað við reynsluna frá síðasta ári af því að við sköpuðum 3000 störf í fyrra, það fyllist ekki í öll þau störf þannig að það var ákveðið að fara í 2.500 að þessu sinni en lengja tímabilið úr tveimur mánuðum í tvo og hálfan mánuð. En við erum tilbúin, um leið ef það fyllist í þessi störf, þá munum við skapa fleiri störf,“ segir Ásmundur.