Eftirför, líkamsárásir og vegabréfaþjófnaður Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 20. júní 2021 07:21 Tilkynnt var um tvær líkamsárásir í miðbæ Reykjavíkur í gær. Vísir/Vilhelm Lögregla á höfuðborgarsvæðinu átti í eftirför á áttunda tímanum í gærkvöldi eftir að ökumaður bifreiðar stansaði ekki þegar lögregla gaf merki um það með bláum ljósum og hljóðmerkum. Bílnum var ekið yfir gras og eftir gangstéttum en stoppaði að lokum og reyndi þá ökumaðurinn að hlaupa af vettvangi. Ökumaðurinn, sem er ung kona, var handtekin og er hún grunuð um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Fjórir til viðbótar voru handteknir grunaðir um að hafa keyrt undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis í gærkvöld og í nótt. Þá var einn ökumaður stöðvaður vegna þess að bifreið hans var ekki tryggð og voru skráningarnúmer tekin ef bílnum. 17 ára gamall ökumaður var stöðvaður á Reykjanesbraut en hann mældist á 130 km/klst hraða en hámarkshraði er 80 km/klst. Hringt var í móður hans og tilkynning send til Barnaverndar. Tvær líkamsárásir voru tilkynntar í miðbæ Reykjavíkur í gær. Maður í annarlegu ástandi var handtekinn á veitingastað grunaður um líkamsárás, en hann hafði veist að dyraverði. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu sökum ástands. Þá höfðu tveir menn ítrekað slegið mann í höfuðið og hlupust þeir svo á brott. Maðurinn, sem varð fyrir árásinni, var fluttur með sjúkrabíl á Bráðadeild til aðhlynningar. Tveir karlmenn voru handteknir í verslunarmiðstöð í Austurbæ Reykjavíkur síðdegis í gær grunaðir um þjófnað á fatnaði og voru þeir vistaðir fyrir rannsókn málsins í fangageymslu lögreglu. Tilkynnt var um innbrot og þjófnað á heimili í miðbæ Reykjavíkur. Fartölvum, vegabréfum og fleiru var stolið. Tveir duttu af rafmagnshlaupahjóli í gær, annars vegar í Kópavogi og hins vegar í miðbæ Reykjavíkur. Allavega annar var fluttur með sjúkrabíl á Bráðadeild.
Lögreglumál Mest lesið Útlit fyrir mestu snjókomu í október í manna minnum Innlent Um 140 umsækjendur um alþjóðlega vernd týndir og eftirlýstir Innlent Erfitt að segja til um viðbrögð við nýjum faraldri miðað við Covid-viðbrögð Innlent Allt að þriggja tíma bið í dekkjaskipti Innlent Matarbankar segjast ekki munu anna eftirspurninni Erlent Komu innlyksa mæðginum til bjargar í Landmannalaugum Innlent Hófu ekki rannsókn á heimilisofbeldi fyrir misskilning Innlent Garðheimar ljósið í myrkrinu við meinta gímaldsgötu Innlent Gular viðvaranir vegna snjókomunnar suðvestantil Veður Aftökur á meintum smyglurum „ekki morð“ heldur „vörn við eitri“ Erlent Fleiri fréttir Tilkynntu Terra og Kubb eftir fundi með sveitarfélögum Alger óvissa í lánamálum og margra tíma bið eftir dekkjaskiptum Kláfur á Ísafirði fari í opinbera kynningu Hófu ekki rannsókn á heimilisofbeldi fyrir misskilning Erfitt að segja til um viðbrögð við nýjum faraldri miðað við Covid-viðbrögð Allt að þriggja tíma bið í dekkjaskipti Komu innlyksa mæðginum til bjargar í Landmannalaugum Um 140 umsækjendur um alþjóðlega vernd týndir og eftirlýstir Garðheimar ljósið í myrkrinu við meinta gímaldsgötu Útlit fyrir mestu snjókomu í október í manna minnum Brennu–Njáls saga vekur alltaf lukku í Hvolsskóla Bresk freigáta í Akureyrarhöfn Beittur piparúða í fangaklefa, hótað með rafbyssu og sveltur Beittur piparúða, hótað með rafbyssu og sveltur í fangaklefa Sendiferðabíll í ljósum logum á Reykjanesbraut Íris segist ekki sækjast eftir sæti í Hafnarfirði Ástarbréf eru velkomin á héraðsskjalasöfn landsins Nafn mannsins sem lést vegna voðaskots Hinna látnu minnst í Flateyrarkirkju Sorg á Flateyri og rússnesk kjarnorkueldflaug Er enn að vinna úr því að hafa lifað Pirraðir læknar, efnahagurinn eftir áföll og húsnæði og lánakjör Reyndi að stinga af en endaði utan í vegriði Kynferðisbrotum sem leiða til greiðslu bóta hefur fjölgað verulega Fólk hafi dreymt um að eignast flugstjóradress Áhugasamir smalahundar á námskeiði Eldur í bíl á Seltjarnarnesi Meirihluti fólks geti ekki keypt íbúð í nýju lánakerfi sem sé að teiknast upp Nánast enginn fái að kaupa íbúð Lögregla veitti eftirför um miðborgina Sjá meira