Forsíður ítölsku blaðanna: „Guð er ítalskur“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. júlí 2021 08:01 Ítölsku leikmennirnir fagna með Jorginho í fararbroddi en þetta móment var áberandi á forsíðum ítölsku blaðanna. AP/Justin Tallis Ítölsku blöðin slógu auðvitað upp sigri fótboltalandsliðsins í undanúrslitaleik EM en ítölsku leikmennirnir fögnuðu sigri á forsíðunum.
Ítalir unnu Spánverja í vítakeppni og eiga nú möguleika að vinna sinn fyrsta Evrópumeistaratitil síðan 1968 eða í 53 ár. Þetta verður tíundi úrslitaleikur Ítala á stórmóti og sá númer fjögur á EM. Ítalir hafa tapað tveimur síðustu úrslitaleikjum sínum á EM, 2000 og 2012. Ítalska liðið hefur leikið 32 landsleiki í röð án þess að tapa og Roberto Mancini er að gera frábæra hluti með liðið. Það er athyglisvert að skoða forsíðu blaðanna og þá sérstaklega þá hjá íþróttablaðinu Corriere dello Sport. Fyrirsögnin hjá Corriere dello Sport er „Dio é italino“ eða einfaldlega „Guð er ítalskur“ eins og sjá má hér fyrir neðan. Á myndinni sem fylgir með er Jorginho að fagna vítinu sem tryggði ítalska liðinu sigurinn í vítakeppninni. Annað stórt íþróttablað, Gazzetta dello Sport, var með „Veislu“ eða „Fiesta“ í fyrirsögninni á forsíðu sinni. Tuttosport er með fyrirsögnina „Che Leoni“ eða „Hvaða ljón“ með væntanlega vísun í ensku ljónin sem mæta mögulega Ítölum í úrslitaleiknum. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar forsíður blaðanna á Ítalíu.
EM 2020 í fótbolta Ítalía Mest lesið Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Fótbolti Hafþór Júlíus fagnaði tólfta titlinum með því að rífa bolinn af sér Sport Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enski boltinn Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Enski boltinn Arnar með met í 100 km: „Sýnist þetta vera níundi hraðasti tíminn í heiminum“ Sport Hákon gaf syni Dagnýjar treyjuna sína Fótbolti Dagskráin: Enski boltinn byrjar og risaleikur í Bestu Sport Japanskur hnefaleikakappi lést eftir bardaga Sport Mist varði hártog Þróttarakonu í Bestu mörkunum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mist varði hártog Þróttarakonu í Bestu mörkunum Hákon gaf syni Dagnýjar treyjuna sína Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Öll mörk Patricks Pedersen í efstu deild Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool McLagan framlengir við Framara De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Völsungur kom til baka og nældi í stig Björgvin Karl: Settið sem kom að sunnan ekki í Bestu deildar klassa Uppgjör: FHL-FH 0-2 | Þolinmæði vann þraut FH gegn FHL Diljá með stoðsendingu í fyrsta byrjunarliðsleiknum Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Daníel Tristan lagði upp mark en það var ekki nóg gegn toppliðinu Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Meiðsli Rodri verri en menn héldu Segir hetju Evrópumeistaranna ljúga Fékk rautt spjald fyrir að toga í hár mótherja Stórstjörnur Barcelona sektaðar fyrir brot á lyfjaprófsreglum Manchester United staðfestir kaupin á Sesko Segja Sölva hæðast að Bröndby Fékk flugeld í punginn í leik Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Heimsmeistarar Chelsea lögðu Leverkusen í æfingaleik Njarðvíkingar á toppi Lengjudeildarinnar Sjá meira