Vildi myrða glaðar konur Samúel Karl Ólason skrifar 7. ágúst 2021 07:40 Sjúkraflutningamenn flytja eitt fórnarlamb árásarinnar úr lestarstöð í Tókýó. AP/Kyodo News Maður var handtekinn fyrir að særa tíu manns með hnífi í lest í Tókýó í Japan í gær. Hann sagði lögregluþjónum að hann hefði séð konur sem virtust glaðar í lestinni og að hann vildi myrða þær.
Í frétt NHK segir að maðurinn sé 36 ára gamall og hann heiti Tsushima yusuke. Hann dró upp hníf um borð í lestinni og réðst þar á fólk. Ein kona á þrítugsaldri særðist alvarlega á baki og annarsstaðar en enginn var í lífshættur. Árásarmaðurinn stökk út úr lestinni og flúði en hann var handtekinn þegar hann gekk inn í verslun í um fimm kílómetra fjarlægð. Þar mun maðurinn hafa tilkynnt að hann væri árásarmaðurinn í lestinni og að hann væri þreyttur á því að flýja. Reuters vitnar í annan japanskan miðil sem segir árásarmanninn hafa sagt lögregluþjónum að hann hafi byrjað að vilja myrða glaðar konur fyrir um sex árum síðan. Honum hafi þó í raun verið sama hvern hann dræpi, svo lengi sem hann dræpi marga. Hann hefur játað verknaðinn og verður líklegast ákærður fyrir morðtilraunir. Ofbeldisglæpir eru tiltölulega sjaldgæfir í Japan en fréttaveitan segir þó að nokkrar hnífaárásir þar sem ráðist hefur verið á fólk að handahófi hafi átt sér stað. Mikil öryggisgæsla er í Tókýó vegna ólympíuleikana sem standa þar yfir.
Japan Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Erlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Fleiri fréttir Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Sjá meira