Myndin er fyrsta leikna íslenska kvikmyndin sem veitir innsýn inn í pólskt samfélag á Íslandi í nærmynd. Aðalhlutverk myndarinnar er í höndum Olgu Boladz sem er mikils metin leikkona í Póllandi. En handritið er eftir Árna og Michal Godzic.
Allar myndir Árna sýndar á RIFF
Wolka er íslenskt - pólskt samstarfsverkefni og fer fram á pólsku en flest hlutverk eru í höndum pólskra leikara. Hins vegar koma margir Íslendingar að framleiðslu hennar, til dæmis sér Atli Örvarsson um tónlistina og Brynja Skjaldardóttir um búningana, og Marta Luiza Macuga ekkja Árna Ólafs er leikmyndahönnuður.
Myndin gerist að mestu á Íslandi nánar tiltekið í Vestmanneyjum og er ómetanlegur samtímaspegill fyrir okkur Íslendinga. Framleiðsla myndarinnar eru í höndum Hilmars Sigurðssonar og Begga Jónssonar hjá Sagafilm og Stanislaw Dziedzic hjá Film Produkcja.
Með aðalhlutverk fara Olga Boladz, Anna Moskal, Eryk Lubos, Jan Cieciara og Guðmundur Ingi Þorvaldsson.
Sérstakur flokkur hefur verið skipaður á RIFF til heiðurs Árna og verða allar myndirnar hans sýndar á hátíðinni. Myndirnar BRIM, Blóðbönd, Lói þú flýgur aldrei einn ásamt Wolku.
Um myndina Wolka:
Þegar Anna fer á reynslulausn úr fangelsi í Póllandi eftir 15 ár á bakvið lás og slá er einungis eitt sem hún ætlar sér – það er að finna konu að nafni Dorota. Hún leitar hennar í gamla hverfinu sínu í Varsjá en þar er allt í niðurníðslu og flestir sem hún áður þekkti farnir eitthvað annað. Þeir fáu sem eftir eru og hana þekkja vita ekki hvar Dorota er niðurkomin. Þegar Anna er við það að gefast upp á leitinni kemst hún að því, sér til mikilla vonbrigða, að Dorota hefði flutt til Íslands nokkrum árum áður. Anna hættir öllu sínu og ferðast til Íslands á fölsku vegabréfi vitandi það að hún gæti verið að fórna frelsinu með því að taka áhættuna.
Wolka - Stikla from Sagafilm Productions on Vimeo.
Árni Ólafur Ásgeirsson útskrifaðist frá Polish National Film School og var hans fyrst mynd í fullri lengd Blóðbönd - Thicker Than Water sem kom út árið 2006. Myndin var sýnd á mörgum kvikmyndahátíðum víðsvegar um heiminn. Næsta mynd hans BRIM kom svo út árið 2010 og var líka tilnefnd til verðlauna á mörgum alþjóðlegum hátíðum, auk þess að vinna fjölda Eddu verðlauna, meðal annars sem besta kvikmyndin.
Þriðja mynd Árna var þrívíddar teiknimyndin Ploey –You Never Fly Alone, sem var sýnd í meira en 90 löndum. Árni var áhrifamikill í kvikmyndageiranum á Íslandi og tók virkan þátt í starfi SKL auk þess að skrifa meðal annars og leikstýra fjölda sjónvarpsþátta og auglýsinga.