Skoðun

„Nú meikarðu það, Gústi“

Valdimar Víðisson skrifar

Finnst vel við hæfi að heiti þessarar greinar vísi í dægurlagatexta sem Bjartmar Guðlaugsson samdi fyrir einhverjum árum síðan. Lagið sem fjallar um Gústa sem ætlar að gera það gott.

Ágúst Bjarni Garðarsson skipar annað sætið á lista Framsóknar í suðvestur kjördæmi. Það yrði mikill fengur fyrir Alþingi Íslendinga að fá Gústa á þing. Sem stendur er Framsókn með einn mann í kjördæminu og flestar skoðanakannanir benda til að Framsókn haldi þeim manni. Einstaka könnun hefur sýnt Framsókn með tvo menn inni og við þurfum á þínum stuðningi að halda til að ná því. Við þurfum mann eins og Ágúst Bjarna á þing.

Sem bæjarfulltrúi í Hafnarfirði hefur hann látið að sér kveða svo um munar. Hann setur sig inn í öll mál og fylgir þeim eftir, heimsækir vinnustaði og íbúa, hlustar á fólkið og vinnur að heilindum fyrir bæjarfélagið.

Fyrir rúmum fjórum árum hafði hann samband við mig og spurði hvort ég vildi ekki bjóða mig fram fyrir Framsókn í Hafnarfirði. Ég tók mér smá umhugsunarfrest en ákvað að slá svo til. Ákvörðun sem ég sé ekki eftir. En um leið og ég hafði sagt já þá kynntist ég öðrum Gústa en ég hafði þekkt áður. Kynntist stjórnmálamanninum Ágústi Bjarna sem hefur skýra sýn á samfélagið. Það væri efni í langa grein ef ég ætlaði að nefna allt sem hann stendur fyrir en verð þó að nefna sérstaklega málefni fjölskyldunnar. Hann setur fjölskylduna í fyrsta sæti og hvikar hvergi frá þeim markmiðum sínum að létta undir með þeim hvort sem það er að minnka greiðslubyrði á fjölskyldur, styðja við öryrkja og bæta hag þeirra, búa öldruðum áhyggjulaust ævikvöld og aðstoða þá sem minnst mega sín í samfélaginu. Gústi hefur einlægan áhuga á fólki og vill vinna fyrir það. Hann hefur gert það frábærlega í þessi tæpu 4 ár í bæjarmálunum en óskar núna eftir þínum stuðningi til að gera slíkt hið sama á landsvísu.

Hann hefur stefnt á þennan starfsvettvang í mörg ár. Hann starfaði í fimm ár sem aðstoðarmaður ráðherra áður en hann fór í bæjarmálin en nú er komið að næsta skrefi, Alþingi Íslendinga.

Tryggjum Gústa góða kosningu þann 25. september næstkomandi. Setjum X við B.

Höfundur er skólastjóri í Hafnarfirði.




Skoðun

Sjá meira


×