Þó svo að ástarsamband sé gott og stöðugt geta einstaklingarnir verið ólíkir, með ólíkar áherslur, ólík áhugamál og ólíkar skoðanir.
Flest pör deila þó svipuðum grunngildum sem ætla mætti að væri mikilvægt fyrir fólk til að eiga samleið í gegnum lífið.
En hvað með stjórnmálin?
Stjórnmál koma jú öllum við og fæstir sem hafa enga skoðun á þeim. Þar takast á ólíkar áherslur, ólík sjónarmið, mismunandi forgangsröðun og vissulega ólík gildi.
Þegar kemur að ástarsamböndum, ætli það sé algengara en ekki að pör séu með svipaðar skoðanir þegar kemur að stjórnmálum?
Kýs það yfirleitt sama flokkinn?
Spurningu vikunnar er að þessu sinni beint til allra þeirra sem eru í sambandi.
Makamál hafa síðustu tvö ár spurt lesendur Vísis vikulega um þeirra skoðanir og viðhorf varðandi málefni tengd ástinni, samböndum, tilfinningum og kynlífi.
Fyrir áhugasama er hægt að nálgast allar fyrri Spurningar vikunnar og niðurstöður hér.