Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi sagst vera með brákaða tönn eftir að hafa verið sleginn í andlitið. Þegar lögregla hafi komið á vettvang hafi sá sem sakaður var um höggið enn verið á staðnum. Hann gaf þær skýringar að hann hafi slegið hinn utan undir einu sinni þar sem hann hafi ítrekað verið með kynþáttafordóma í sinn garð. Ekki fylgir sögunni í skeyti frá lögreglu hvernig málinu lyktaði.
Rétt eftir klukkan níu í gærkvöldi var bíl ekið á ljósastaur á Gullinbrú. Ökumaðurinn ók að því loknu á brott en var stöðvaður skömmu síðar. Um var að ræða unga konu sem flutt var á bráðadeild til aðhlynningar en að því loknu vistuð í fangageymslu grunuð um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna.
Klukkan rúmlega eitt í nótt var bíl síðan ekið á ljósastaur í miðbænum. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur og var vistaður í fangageymslu. Orkuveitunni var tilkynnt um skemmdir á ljósastaurnum og dráttarbíll var fenginn á staðinn til að fjarlægja bílinn af vettvangi.
Og um klukkan tvö í nótt varð síðan umferðarslys í Kópavoginum en þar fannst ung kona liggjandi í götunni eftir fall af vespu. Hún var með verki í fæti- og baki og flutt með sjúkrabíl á bráðadeild til aðhlynningar. Vespuna var hvergi að sjá þegar lögreglu bar að garði og konan vildi engar upplýsingar gefa um ökumanninn.
Þá segir að tilkynnt hafi verið um þjófnað á verðmætum úr læstu hótelherbergi í miðborginni. Þar hafði leikjatölvu og fjarstýringum verið stolið.