Einn vinsælasti rappari Svíþjóðar skotinn til bana Atli Ísleifsson skrifar 22. október 2021 07:07 Einár var skotinn til bana í Hammarby sjöstad í Stokkhólmi í gærkvöldi. Getty/Facebook Sænski rapparinn Einár var skotinn til bana í Hammarby sjöstad í Stokkhólmi í gærkvöldi. Sænskir fjölmiðlar greina frá því að heimildarmenn segi Einár hafa ítrekað verið hótað. Morðið er talið tengjast átökum glæpagengja í sænsku höfuðborginni.
Expressen segir frá því að sést hafi til tveggja manna hlaupa af vettvangi árásarinnar, en enginn hefur enn verið handtekinn. Einár hét réttu nafni Nils Kurt Erik Einar Grönberg og var hann með margar milljónir hlustana á Spotify. Hann hafði unnið til sænsku tónlistarverðlaunanna, Grammis, bæði sem nýliði ársins og besti hip-hop listamaður ársins. Hann var nítján ára gamall. Ola Österling, talsmaður lögreglu, segir að vitni hafa verið að árásinni. Tilkynnt var um árásina við syðri Hammarbyhöfnina klukkan 22:50 að staðartíma í gærkvöldi. Mikill fjöldi lögreglumanna var þá kallaður á staðinn og kom að alvarlega særðum manni. Hafði hann verið skotinn í höfuðið og bringu. Hann var í framhaldinu úrskurðaður látinn. Rannsókn lögreglu er í fullum gangi. Einar fæddist í Stokkhómi árið 2002 og sló í gegn sextán ára gamall með laginu Katten í trakten sem náði efsta sæti sænska vinsældalistans. Sama ár, 2019, gaf hann út sína fyrstu plötu, Första klass.
Svíþjóð Tónlist Andlát Mest lesið Mun færri slasaðir eftir skíðaslysið en talið var í fyrstu Erlent „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Innlent „Algjört þjóðaröryggismál að hafa þetta í lagi“ Innlent Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli Innlent Ný og glæsileg heilsugæslustöð opnuð í Vogum Innlent Grímuklæddi maðurinn kúkaði aftur á bílinn Innlent Prófessorar íhuga verkfall: „40% akademísks starfsfólks í kulnun eða komin langt á leið“ Innlent E. coli fannst í neysluvatni Innlent Drepin í árás daginn fyrir vopnahlé Innlent Fengu tæpar fimm og sex milljónir króna í tvöföldum launagreiðslum Innlent Fleiri fréttir Mun færri slasaðir eftir skíðaslysið en talið var í fyrstu Segir miklar líkur á að Tiktok banni verði frestað Margir alvarlega slasaðir á skíðasvæði á Spáni Þrír látnir eftir loftárás Rússa Hæstaréttardómarar skotnir til bana í Tehran Samþykktu vopnahlé en framtíðin óljós Innsetningarathöfnin verður innandyra í fyrsta sinn í fjörutíu ár Hæstiréttur veitir TikTok banninu blessun sína Ríkisstjórnin fundar um vopnahlé Deilur á þingi gætu komið niður á áherslum Trumps Styrkur gróðurhúsalofttegunda aldrei aukist eins hratt Andstaða gegn banni við hjónaböndum systkinabarna Mikið sjónarspil eftir að Starship sprakk „Kallaðu mig Meistara, þá fæ ég það“ Imran Khan í fjórtán ára fangelsi Ræddu í 45 mínútur um Grænland og dönsk fyrirtæki Hindranir úr vegi og vopnahlé yfirvofandi Segir samkomulagið standast og vopnahléið hefjist á sunnudag Fyrrverandi forsætisráðherra Finna fer fram á nálgunarbann Her Súdan í sókn gegn RSF og hermenn sakaðir um ódæði Hótar hörðum viðbrögðum hafi Rússar tekið Ástrala af lífi Rak formann mikilvægrar nefndar að beiðni Trumps Betri aðstæður næstu daga: Rúmlega tólf þúsund byggingar hafa brunnið Ný eldflaug Bezos náði á sporbraut í fyrstu tilraun Deila um ákvæði um fangaskipti Ráðleggja blóðtöku fyrir íbúa Jersey Áhrifavaldur ákærður fyrir að eitra fyrir barni sínu fyrir athygli Forsætisráðherrann fyrirskipar rannsókn á umdeildri auglýsingu Biden varar við fáveldi í Bandaríkjunum Hamas og Ísrael komast að samkomulagi um vopnahlé Sjá meira