Svava skoraði eitt marka Íslands í 4-0 sigrinum gegn Tékklandi á föstudaginn, í undankeppni HM. Hún verður aftur á Laugardalsvelli í kvöld þegar Ísland mætir Kýpur í seinni leik sínum í þessari törn.
Eftir leikinn við Kýpur heldur Svava heim til Frakklands þar sem hún er hins vegar í hálfgerðri martraðarstöðu hjá liði sínu Bordeaux.
Svava, sem verður 26 ára í næsta mánuði, kom til Bordeaux frá Kristianstad í Svíþjóð í ársbyrjun. Meiðsli settu strik í reikninginn í byrjun en eftir að Svava jafnaði sig „þá var bara allt ótrúlega flott, mér leið vel og spilaði í hverjum leik.“
„Gjörsamlega ekki inni í myndinni hjá þjálfaranum“
Allt breyttist hins vegar þegar franska félagið skipti um þjálfara í sumar. Spánverjinn Pedro Martínez Losa hætti til að taka við skoska landsliðinu og sextugur Frakki, Patrice Lair, tók við Bordeaux. Hverju sem um er að kenna virðist Lair ekki vilja nýta krafta íslenska sóknarmannsins:
„Ég er gjörsamlega ekki inni í myndinni hjá þjálfaranum,“ segir Svava sem hefur bara spilað 23 mínútur í frönsku 1. deildinni í haust, allar í sama leiknum í september. Undanfarið hefur hún ekki einu sinni fengið sæti á varamannabekknum.

Samt er það ekki þannig að Bordeaux gangi vel innan vallar. Liðið er í 7. sæti af tólf liðum í frönsku deildinni, eftir að hafa endað í 3. sæti í vor.
„Alltaf ný og ný ástæða“
Svava er með samning við Bordeaux sem gildir fram í júní á næsta ári en hún fékk ekki að fara frá félaginu í sumar þó að þjálfarinn hefði þá þegar virst búinn að ákveða að hún myndi lítið spila fyrir liðið í vetur:
„Það er alltaf ný og ný ástæða. Til að byrja með þá sagði hann að ég þyrfti að vera búin að vera að spila. Ég er alltaf búin að vera að spila með B-liðinu og skora þar 4-5 mörk í hverjum leik, en það skiptir engu máli fyrir hann. Ég talaði svo við hann og spurði hvað ég gæti gert, því ég vil alltaf bæta mig og ef það er eitthvað sérstakt sem hann vill að ég bæti þá legg ég mig fram um það og bæti mig í því. Hann sagði þá að það væri ekkert sem ég gæti gert til að breyta hans skoðun,“ segir Svava, augljóslega miður sín yfir stöðunni.
Enskt félag vildi fá hana en þjálfarinn stöðvaði það
Svava reyndi að leysa stöðuna áður en félagaskiptaglugginn lokaðist 1. september og umboðsmaður hennar fann áhugasamt félag í ensku úrvalsdeildinni.
„Ég stend mig vel á æfingum, alla vega finnst mér og fleirum það, en það skiptir engu máli fyrir þjálfarann. Einu svörin sem ég fæ frá honum eru bara: „Já, þetta er erfitt“. Hann var búinn að móta sér sína skoðun á mér og vildi strax ekkert með mig hafa. Ég fór á fund með honum tveimur vikum eftir að hann kom og þá sagði hann bara: „Já, ég vildi eiginlega ekki hafa þig hérna. Ég ætla samt að gefa þér séns á að vera hérna fram í janúar.“
Ég fór bara og talaði við umboðsmanninn minn og við fundum lið í ensku úrvalsdeildinni sem ég gat farið að láni til. Ég fór svo á fund með þjálfaranum, um fjórum dögum áður en félagaskiptaglugginn lokaðist, en þá sagði hann bara að ég mætti ekkert fara. Ég var auðvitað ekki sátt en gat svo sem ekkert gert í þessu þar sem ég er samningsbundin,“ segir Svava.

Reynir eins og hún getur að komast í burtu í janúar
Hún fékk reyndar að spila tvo af erfiðustu leikjum Bordeaux á leiktíðinni, í umspili við Wolfsburg um sæti í Meistaradeildinni, en Bordeaux rétt tapaði einvíginu í vítaspyrnukeppni. Þess á milli, og eftir leikina, fékk hún hins vegar ekki einu sinni sæti í leikmannahópnum:
„Það auðvitað meikar ekki sens að ég geti mætt Wolfsburg en sé svo ekki í hóp í leik í frönsku deildinni.“
Svava fékk aftur fund með þjálfaranum þegar hann hafði tekið hana út úr leikmannahópnum í september. Þá vöru svörin eitthvað á þessa leið: „Já, þú getur farið ef þú vilt.“ Félagaskiptaglugginn hafði þá hins vegar lokast, eins og þjálfarinn vissi sjálfsagt fullvel, og opnast ekki að nýju fyrr en í janúar.
„Ég ætla að reyna eins og ég get að komast frá félaginu í janúar en það væri alveg dæmigert ef ég fengi ekki leyfi til þess. Ég er eiginlega komin á þann stað að ég vil ekki pæla í þessu lengur. Það virðist ekki vera neitt sem ég get gert til að breyta þessu.“