Íslenska liðið var með boltann nánast allan tímann og aðeins einu sinni fékk Kýpur tækifæri til að skora mark í leiknum. Það var því sáralítið að gera hjá Cecilíu Rán Rúnarsdóttur sem fékk tækifæri í marki Íslands, og varnarmenn íslenska liðsins þurftu aldrei að hafa sérstaklega mikið fyrir hlutunum.
Framar á vellinum náðu svo nokkrir leikmenn íslenska liðsins að heilla með frammistöðu sinni en einkunnagjöf íslenska liðsins má sjá hér að neðan.
Byrjunarliðið:
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður 6
Lýtalaus frammistaða í hennar fyrsta mótsleik fyrir Ísland. Því ber þó að bæta við að hin 18 ára gamla Cecilía þurfti aldrei að verja skot eða grípa fyrirgjöf í leiknum. Hún rétt snerti boltann til að taka þátt í spili og tók hann einu sinni upp með höndum eftir sendingu Kýpverja fram.
Guðný Árnadóttir, hægri bakvörður 7
Átti þátt í þriðja marki Íslands með fyrirgjöf sinni. Studdi ágætlega við Sveindísi en fór ekki mikið fram. Virðist bara líða vel í bakvarðarstöðunni.
Ingibjörg Sigurðardóttir, miðvörður 6
Nálægt því að skora eftir hornspyrnu í lok fyrri hálfleiks. Hefur líklega sjaldan spilað auðveldari leik í vörn íslenska liðsins og skilaði boltanum ágætlega frá sér. Gat lítið gert gegn þessum mótherja til að sanna að hún eigi að endurheimta sætið í byrjunarliðinu.
Sif Atladóttir, miðvörður 6
Sneri aftur í liðið eftir tveggja ára fjarveru og hafði afskaplega náðugan dag eins og öll íslenska vörnin. Á hælunum þegar Kýpur fékk sitt eina færi í fyrri hálfleik. Spilaði boltanum misvel frá sér og stundum fullhægt.
Elísa Viðarsdóttir, vinstri bakvörður 8
Var afar dugleg að koma fram og kom að þremur marka Íslands í kvöld, réttfætt í stöðu vinstri bakvarðar. Átti fyrirgjöfina í fyrsta marki Íslands, rassastoðsendingu í þriðja markinu og sendingu yfir á Sveindísi í fjórða markinu. Þurfti ekkert að hafa fyrir varnarhlutverkinu.
Alexandra Jóhannsdóttir, miðjumaður 8
Varfærin í leik sínum og kannski fulláhættufælin miðað við tilefnið. Passaði upp á vörnina og sendi boltann einfalt frá sér en átti líka mikilvægar sendingar líkt og í marki Sveindísar í fyrri hálfleik. Skoraði gott skallamark eftir hornspyrnu.
Dagný Brynjarsdóttir, miðjumaður 7
Hélt áfram að bæta við mörkum í þessum landsleikjaglugga og nálgast óðum Hólmfríði Magnúsdóttur sveitunga sinn í 2. sæti yfir markahæstu leikmenn landsliðsins, með 32 mörk í 95 leikjum sem miðjumaður. Spilaði boltanum vel og örugglega frá sér og var ágætlega hreyfanleg.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, miðjumaður 8
Kann að gera hlutina nógu hratt og gat opnað vörn Kýpur með einni sendingu eða jafnvel einni hreyfingu. Fer afar vel með boltann og skoraði mark í fyrri hálfleik, og raunar annað sem var ranglega dæmt af.
Sveindís Jane Jónsdóttir, hægri kantmaður 8
Var búin að gefa bakverði Kýpur hausverk eftir örfáar mínútur enda svona þrefalt fljótari. Kom Íslandi í 2-0 með því að skjótast leikandi framhjá varnarmanni og þruma í markið, og bætti við öðru marki í seinni hálfleik sem átti líklega að vera stoðsending. Áræðin að vanda en reyndi líka að finna samherja á réttum tímapunkti.
Amanda Andradóttir, vinstri kantmaður 7
Fyrsti landsleikur í byrjunarliði. Reyndi mikið sjálf og stundum komu góðir hlutir út úr því en í önnur skipti snerti hún boltann of mikið. Með ofboðslega góða boltameðferð og gat auðveldlega leikið á Kýpverjana en erfitt að fella stóran dóm í ljósi þess hve mótspyrnan var lítil. Átti hornspyrnuna í fimmta marki Íslands.
Svava Rós Guðmundsdóttir, framherji 6
Kom sér í 2-3 færi í fyrri hálfleik og var ranglega dæmd brotleg eftir að hafa lagt upp mark. Var áfram dugleg í seinni hálfleiknum en hefði mátt nýta tækifærið betur í fremstu víglínu.
Varamenn:
Berglind Rós Ágústsdóttir kom inn á fyrir Dagný Brynjarsdóttur á 63. mínútu 6
Kom inn sem aftasti miðjumaður og sá til þess að kýpverska liðið komst ekkert frekar fram á við en fyrr í leiknum.
Karitas Tómasdóttir kom inn á fyrir Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur á 63. mínútu 6
Skilaði sínu inni á miðjunni en var ekkert sérstaklega áberandi frekar en aðrir varamenn íslenska liðsins í leiknum.
Agla María Albertsdóttir kom inn á fyrir Sveindísi Jane Jónsdóttur á 68. mínútu 6
Tók þátt í að halda uppi pressu fyrir íslenska liðið en skapaði ekki nein dauðafæri að þessu sinni.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir kom inn á fyrir Guðnýju Árnadóttur á 68. mínútu 6
Fékk að spreyta sig í bakvarðarstöðunni, hægra megin en ekki vinstra megin eins og hún hefur gert undanfarið með Breiðabliki. Ekkert út á hennar leik að setja.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir kom inn á fyrir Svövu Rós Guðmundsdóttur á 75. mínútu 6
Nálægt því að sleppa í gegnum vörnina einu sinni en hafði sig annars ekki mikið í frammi frekar en aðrir varamenn íslenska liðsins.