Í þættinum Um land allt má sjá myndir af þessari mögnuðu strandlengju en hún er skammt frá kirkjustaðnum Svalbarði, um þrjátíu kílómetra vestan Þórshafnar. Þar blasa við óvenju fjölskrúðugar klettamyndanir með gatklettum, vogum og hellum, sem brimið hefur sorfið inn í ströndina.

„Það voru bara heimamenn sem þekktu þessa stórkostlega fallegu strandlengju hérna - fallegar klettamyndanir, gatklettar og skútar,“ segir Steingrímur.
„En nú er þetta að komast á kortið og er að verða býsna vinsæl gönguleið enda er hún ákaflega þægileg, örugg og hægt að sjá þetta á tveimur tímum eða svo. Og eru alveg stórkostlega falleg náttúrufyrirbæri hérna. Þetta er með fallegri klettaströndum sem gefur að líta, bara í landinu.“

Og núna dregur þessi áður leynda perla að sér æ fleiri ferðamenn, jafnt innlenda sem erlenda. Á heimreiðinni að eyðibýlinu Völlum er búið að gera bílastæði og setja upp upplýsingaskilti við upphaf merktrar gönguleiðar, sem er um sjö kílómetra löng hringleið.

„Ár frá ári er þetta að vaxa. Og er að gerast hér það sama, og hefur gerst víðar, að svona staðir fara að kynna sig sjálfir. Fólk er að senda myndir sem það tekur og segja frá og þessi staður er á bullandi uppleið hvað það snertir; að hér er aukin umferð ár frá ári," segir Steingrímur.

„Og þetta er svæði sem er í raun og veru mjög aðgengilegt, rétt við þjóðveginn, og hægt að fara hér stuttar ferðir og sýna. Þetta er þurrlent þannig að það þolir alveg umferð og hefur margt að bjóða. Fyrir utan klettana og ströndina sjálfa er hér lundi yst á nesinu og svolítið af bjargfugli. Virkilega flottur staður.“
Og ferðaþjónusta styrkist í sveitinni. Á bænum Holti reka sauðfjárbændurnir Hildur Stefánsdóttir og Sigurður Þór Guðmundsson gistiheimili sem þau nefna Grástein en þau byrjuðu með tvö sumarhús vorið 2017.

„Það er miklu meiri eftirspurn en við þorðum að vona. Og eins og maður var svartsýnn í byrjun sumars í fyrra og núna þá eru þetta bara að verða toppsumrin hjá okkur,“ segir Hildur.
Hér má sjá kafla úr þættinum en hann er endursýndur á Stöð 2 í dag, sunnudag, klukkan 16:50.