Viðskipti innlent

Icelandair hefur frakt­flug milli Ítalíu og Banda­ríkjanna

Árni Sæberg skrifar
Gunnar Már Sigurfinnsson er framkvæmdastjóri Icelandair Cargo.
Gunnar Már Sigurfinnsson er framkvæmdastjóri Icelandair Cargo. Icelandair

Icelandair Cargo hefur í dag fraktflutningar milli Mílanó á Ítalíu og New York í Bandaríkjunum. Fram að áramótum hið minnsta verður flogið þrisvar í viku.

í fréttatilkynningu Icelandair Cargo segir að samhliða vöruflutningum milli Ítalíu og Bandaríkjanna verði flogið með sjávarafurðir frá Íslandi sem og aðrar vörur sem fluttar eru hingað til lands, en komið verði við á Íslandi á leið yfir Atlantshafið.

Þá segir að upphaf flugsnins megi rekja til samnings milli Icelandair Cargo og þýska flutningamiðlunarfyrirtækisins DB Schenker. Sem kunnugt sé hafi Icelandair Cargo flutt lækningavörur frá Kína til Evrópu og Bandaríkjanna á vegum DB Schenker vorið 2020 með góðum árangri.

Öðrum áætlunarleiðum Icelandair Cargo verði ekki breytt vegna nýju leiðarinnar. Áfram verði flogið til Boston í Bandaríkjunum og Liege í Belgíu, en flug þangað hafi aukist töluvert eftir að Icelandair Cargo gerði samning við FedEx og TNT um flutninga á öllum þeirra vörum til og frá Íslandi í lok árs 2019. 

Þá hafi flutningur á frakt í farþegakerfi Icelandair aukist samhliða uppbyggingu félagsins á farþegaleiðakerfinu eftir að Covid faraldurinn skall á.

„Þessi samningur kemur í kjölfar þeirra verkefna sem við höfum sinnt í samstarfi við DB Schenker á liðnu ári. Flugið til Ítalíu mun einnig auka þá möguleika sem bæði innflytjendur og útflytjendur hafa á vöruflutningum til og frá Suður Evrópu. Við höfum lagt kapp á að grípa þau tækifæri sem eru til staðar í síbreytilegum og vaxandi heimi fraktflutninga og náð að skapa Icelandair Cargo gott orðspor á alþjóðavísu. Við sjáum tækifæri til sóknar á Norður-Atlantshafinu með því að flytja meira af frakt milli Evrópu og Ameríku og má segja að þetta verkefni sé afleiðing af því. Fraktflutningar jukust um 23% fyrstu níu mánuði ársins í ár miðað við sama tíma í fyrra, en mesta aukningin er einmitt á N-Atlantshafinu og við erum bjartsýn á áframhaldandi vöxt,“ segir Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo, í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×