Innlent

85 greindust innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
932 eru nú í einangrun vegna Covid-19, en voru 897 í gær.
932 eru nú í einangrun vegna Covid-19, en voru 897 í gær. Vísir/Vilhelm

85 greindust smitaðir af Covid-19 innanlands í gær. 36 þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 42 prósent. 49 voru utan sóttkvíar, eða 58 prósent.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is.

932 eru nú í einangrun vegna Covid-19, en voru 897 í gær. 1.200 eru nú í sóttkví, en voru 1.169 í gær. 292 eru nú í skimunarsóttkví.

Þrettán eru nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, líkt og í gær. Tveir eru á gjörgæslu, sami fjöldi og í gær.

Fjögur smit kom upp á landamærunum í gær –allt virk smit í fyrri landamæraskimun.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 283,3, en var 282,0 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 24,3, en var 24,8 í gær.

Alls hafa 13.829 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 34 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×