Innlent

101 nýr hjóla­stólarampur í mið­borginni

Þorgils Jónsson skrifar
Átak til umbóta í aðgengismálum í miðborg Reykjavíkur hefur gengið afar vel.
Átak til umbóta í aðgengismálum í miðborg Reykjavíkur hefur gengið afar vel. Mynd/Vísir

Römpum upp Reykjavík, átak til að bæta aðgengismál í miðborg Reykjavíkur, hófst í mars og síðan þá hafa verið settir upp hundrað og einn rampur fyrir hjólastóla við innganga verslana og veitingastaða. Áfanganum var fagnað í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.

Haraldur Þorleifsson, forsprakki átaksins, gaf sjálfur fimm milljónir í það og fékk fleiri með sér. Hann efaðist aldrei um að þetta tækist. Nú þurfi hins vegar að halda áfram í öðrum póstnúmerum og landshlutum.

„Við fórum og töluðum við borgina fyrst og borgin var með. Svo fór boltinn að rúlla og við töluðum við einkaaðila um að styrkja verkefni og ríkið um að koma að verkefninu líka. Innan skamms var kominn mjög góður hópur og þetta tók eiginlega enga stund.“

Margrét Rut Eddudóttir, eiginkona Haralds, segir aðspurð að þau finni þegar mikinn mun á að fara um miðborgina eftir að römpum fór að fjölga.

„Það hefur aldrei verið eins skemmtilegt að rölta laugarveginn eins og síðasta sumar. Þetta er frelsisaukandi að geta farið öll saman óheft án þess að skilja neinn útundan – að þurfa að skjótast einhversstaðar inn og skilja einhvern eftir úti í kuldanum.“

Dagur B,. Eggertsson borgarstjóri segir átakinu hvergi nærri lokið.

„Við viljum halda áfram í hliðargötum en líka annarsstaðar þar sem er þörf á því að gera verslanir og veitingahús aðgengilegri.“

Klippa: Tók innan við ár að koma upp hundrað og einum rampi

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, segir að þrátt fyrir að aðgengismál séu víða í lagi í bænum þurfi líka að laga þar.

„Við vitum nokkurn veginn hvar skórinn kreppir og hvað þarf að laga til.“

Forseti Íslands er verndari átaksins og var á fundinum ásamt félagsmálaráðherra. Þá ávarpaði forsætisráðherra fundinn með fjarbúnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×