Íslenskur rjómalíkjör, granóla, barnamatur og harðfiskflögur fyrir valinu Eiður Þór Árnason skrifar 17. nóvember 2021 13:53 Fulltrúar fyrirtækjanna sem taka þátt í Til sjávar og sveita 2021. Icelandic Startups Fyrirtækin Jökla, Sifmar (Krakkakropp), MAR crisps, Náttúrulega gott, Nordic Wasabi og Næra voru nýlega valin inn í viðskiptahraðalinn Til sjávar og sveita 2021 sem settur var á mánudag.
Í ár er áherslan lögð á markaðssókn fyrirtækja sem eru tilbúin með vöru eða langt komin í vöruþróun. Tuttugu umsóknir bárust og var ákveðið að fjölda þátttakendum úr fimm í sex. Fyrirtækin eru fjölbreytt að þessu sinni en Næra notar einstaka aðferð við framleiðslu á snakki með íslensku hráefni. Nordic Wasabii framleiðir hið sjaldgæfa og eftirsótta ferska wasabi sem ræktað er á Íslandi við umhverfisvænar aðstæður. Jökla er fyrsti íslenski rjómalíkjörinn sem kom á markað í ár og Náttúrulega gott framleiðir handgert íslenskt granóla án allra aukaefna, viðbætts sykurs eða sætuefna. Sifmar framleiðir Krakkakropp sem er hollur íslenskur barnamatur sem leggur áherslu á að sporna gegn matarsóun. MAR crisps eru svo örþunnar harðfiskflögur sem ekki hafa sést áður á innlendum markaði. Greint er frá þessu í tilkynningu frá Icelandic Startups sem hefur umsjón með Til sjávar og sveita. Rík áhersla verður lögð á að tengja fyrirtækin við fjárfesta og aðra sérfræðinga á markaði. Ætlað fyrirtækjum sem vilji útfæra næstu skref Freyr Friðfinnsson, verkefnastjóri Til sjávar og sveita, segir að fyrirtæki hafi náð ótrúlegum framförum í viðskiptahröðlum Icelandic Startups en að því loknu þurfi eitthvað annað að taka við. „Jökla tók þátt í fyrra og eru komin með vöru á markað og þá standa þau frammi fyrir nýjum áskorunum eins og skalanleika og markaðssetningu sem er einmitt það sem við leggjum áherslu á í þessari útfærslu á Til sjávar og sveita,“ segir hann í tilkynningu. Tobba Marínós, stofnandi og eigandi Náttúrulega gott, segir það oft flókið og jafnvel óyfirstíganlegt að komast yfir vaxtaverki þegar lítið fyrirtæki rýkur vel af stað. „Það er 80% aukning milli ára hjá okkur en ein vara er ekki nóg. Hvert er náttúrulegt framhald og hvernig skal forgangsraða til að hugmyndir blómstri og stækki. Við hjá Náttúrulega Gott erum tilbúin með heila vörulínu en þurfum að leggjast yfir framhaldið. Okkar vara á sannarlega heima á alþjóðavettvangi en hvernig er best að byrja slíka vegferð? Við mamma erum með milljón hugmyndir sem við vonumst til að verði að skýru aðgerðarplani á næstu vikum með hjálp hraðalsins.“ Bakhjarlar Til sjávar og sveita árið 2021 eru Mjólkursamsalan og Ísey sem og Samkaup sem stutt hefur við verkefnið í samstarfi við Sjávarklasann, Landbúnaðarklasann og Matís. Verkefnið er jafnframt styrkt af Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Nýsköpun Matur Tengdar fréttir Vilja fá öflugustu matarsprota landsins Þriðja árið í röð stendur Icelandic Startups fyrir viðskiptahraðlinum Til sjávar og sveita sem er sérstaklega ætlaður fyrirtækjum í matvælaiðnaði. 11. október 2021 17:15 Mest lesið Húrra dregur saman seglin Viðskipti innlent „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Innleiða gervigreindina í MS Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Sjá meira
Vilja fá öflugustu matarsprota landsins Þriðja árið í röð stendur Icelandic Startups fyrir viðskiptahraðlinum Til sjávar og sveita sem er sérstaklega ætlaður fyrirtækjum í matvælaiðnaði. 11. október 2021 17:15