Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Kletti.
Þetta er þriðji sigur Scania á verðlaunahátíðinni en verðlaunin þykja mjög eftirsótt. Scania 25 P BEV þótti standa sig framúrskarandi vel m.a. fyrir umhverfismilda vélina, öryggisbúnað, akstursþægindi og almenna sjálfbærni.
Dómnefndin sem var frá Vado e Torno tímaritinu og Sustainable Truck & Van hrósaði Scania flutningabílunum sagði m.a. í umsögn sinni að kolefnislaus flutningamáti er meira en bara möguleiki fyrir næstu kynslóðir ökumanna. Scania hefur sýnt fram á að fyrirtækið er með umhverfislausnir tilbúnar hér og nú.
Enrique Enrich, forstjóri Italscania, tók við verðlaununum fyrir hönd Scania og sagði að þessi verðlaun séu frekari staðfesting á þeirri öflugu tækniþróun sem Scania hefði náð í umhverfismálum og sjálfbærni flutningum. „Rafrænar lausnir eru mikilvægar fyrir flutningageirann sérstaklega þar sem um er að ræða engan útblástur og enga hljóðmengun,“ sagði Enrich.
Scania vann í sumar hin virtu „Green Truck“ verðlaun og er það fjórða árið í röð sem atvinnubílaframleiðandinn nær þeim stórgóða árangri. Framkvæmdastjórn ESB hefur staðfest að Scania stendur sig best meðal stórbílaframleiðenda í að draga úr losun koltvísýrings.