
Hefur aldrei verið á stefnumótaforritum
Gréta Karen er dóttir tónlistarmannsins Grétars Örvarssonar og hefur starfað sem tónlistarkona síðustu tólf ár, þá aðallega í Los Angeles.
Gréta fluttist búferlum heim á Frónið í fyrstu bylgju Covid-faraldurs og hefur verið að fóta sig hér heima síðustu misseri.
Þó svo að Gréta sé einhleyp segir hún stefnumótaforritin ekki heilla því að þau séu einfaldlega ekki nógu rómantísk.
„Annars finnst mér lítið um stefnumótamenningu hér á Íslandi. Ef hún er til staðar þá gleymdist alveg að segja mér frá henni, eða hvar hún er,“ segir Gréta og hlær.
En annars er ég alveg á fullu að leita mér að leiguíbúð og ekki væri verra ef einhver eins og Ryan Gosling myndi fylgja með.

Hér fyrir neðan segir Gréta frá því hvaða eiginlegar heilla hana og ekki í viðtalsliðnum Boneorðin 10.
ON:
- Húmor - Fyrst og fremst, „You had me at hlæja.“
- Góðmennska - Að vera góð manneskja með gott hjarta sem að hjálpar öðrum. Að vera með samúð gagnvart náunganum en ekki með hausinn fastan upp í rassinum á sér allan daginn.
- Framhleypni - Ekki bara hanga heima öll kvöld að horfa á sjónvarpið. Ég vil taka dansspor í náttfötunum klukkan þrjú um nótt í Hagkaup, ef stemmningin er þannig. „Call me crazy!“
- Samfélagsleg meðvitund - Manneskja sem veit hvað er að gerast í heiminum en býr ekki í einhverri „búbblu“. Vil geta átt samtal við manneskju um allt milli himins og jarðar sem er með puttann á púlsinum.
- Traust - Skrítið að ég hafi sett það síðast, en ætli það sé ekki vegna þess að ef að þú uppfyllir ekki fyrstu fjögur atriðin þá mun hvort eð er aldrei koma að traustinu. Ef þú brýtur traustið ertu að brjóta hjartað mitt.
OFF:
- Hroki - Manneskja sem telur sig vera betri en aðrir.
- Óöryggi og dónaskapur - Við erum öll að klást við einhverskonar óöryggi á einhverjum sviðum en þegar það bitnar á öðru fólki, þá segi ég stopp. Dónaskapur, baktal og óþarfa upphafning á sjálfum sér með því að draga aðra niður í einhverri öfund.
- Að taka sig of alvarlega - Ég næ því bara ekki hvernig maður kemst í gegnum lífið þannig. Maður verður að geta gert sig að fífli alveg edrú, helst fyrir framan þúsund manns. Lífið er of stutt og það eru allir bara að spá í sjálfum sér hvort eð er.
- Óheiðarleiki - Þarf ég að segja meira.
- Stjórnsemi - Ég sé mikið af fólki fara í sambönd og vilja svo breyta makanum sínum í það mót sem hann vill. Fólk fer að reyna að stjórna makanum, hvernig á að klæða sig og fleira. Þetta er svo einfalt. Ef þú ert ekki að fýla manneskjuna og vilt breyta henni finndu þér þá aðra manneskju.

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast Instagram síðu Grétu Karen hér.