Innlent

95 greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
1.592 eru nú í einangrun vegna Covid-19.
1.592 eru nú í einangrun vegna Covid-19. Vísir/Sigurjón

95 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 53 af þeim 95 sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 56 prósent. 42 voru utan sóttkvíar, eða 44 prósent.

Þetta kemur fram á síðunni Covid.is. 1.592 eru nú í einangrun vegna Covid-19, en voru 1.746 á föstudaginn. 1.939 eru nú í sóttkví, en voru 2.236 á föstudag. 178 eru nú í skimunarsóttkví.

Nítján eru nú inniliggjandi á sjúkrahúsum á landinu vegna Covid-19, samanborið við 21 á föstudag. Þá eru tveir á gjörgæslu vegna Covid-19, en voru þrír á föstudag. Á vef Landspítalans segir að 19 sjúklingar liggi á Landspítala vegna COVID-19. Meðalaldur inniliggjandi er 64 ár. Tveir eru á gjörgæslu, báðir í öndunarvél.

Ellefu af þeim nítján sem liggja inni á Landspítala eru bólusettir, en átta óbólusettir.

Sautján smit kom upp á landamærunum í gær – fjórtán virk smit í fyrri landamæraskimun og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilviki þriggja.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 525,5, en var 555,8 á föstudag. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 27,8 en var 25,4 á föstudag.

Alls hafa 17.770 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 35 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 867 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá var 1.508 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 745 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×