Teitur skoraði fjögur er Flensburg lagði Veszprém Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. desember 2021 19:15 Teitur Örn Einarsson og félagar hans í Flensburg unnu virkilega sterkan sigur gegn Telekom Veszprém í kvöld. Axel Heimken/picture alliance via Getty Images Teitur Örn Einarsson og félagar hans í Flensburg unnu virkilega sterkan þriggja marka sigur gegn ungverska liðinu Telekom Veszprém, 30-27, er liðin mættust í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.
Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks, en um miðjan fyrri hálfleikinn náðu Teitur og félagar góðu áhlaupi þar sem þeir skoruðu fimm mörk í röð og náðu þar með sex marka forskoti. Gestirnir frá Ungverjalandi náðu aðeins að kroppa í forskot heimamanna gyrir hlé, en þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 16-12, Flensburg í vil. Teitur og félagar byrjuðu seinni hálfleikinn vel og komust í sjö marka forystu, 19-12. Gestirnir náðu þó hægt og bítandi að vinna sig aftur inn í leikinn og þegar tæpar fimm mínútur voru til leiksloka minnkuðu þeir muninn í eitt mark og æsispennandi lokamínútur framundan. Nær komust gestirnir þó ekki og niðurstaðan varð þriggja marka sigur Flensburg, 30-27. Teitur Örn skoraði fjögur mörk fyrir heimamenn, en liðið er nú í fimmta sæti B-riðils með níu stig eftir tíu leiki. Veszprém situr í öðru sæti riðilsins með tólf stig, en sigur hefði fært þá upp að hlið Kielce í efsta sætinu.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Þurftu að aflýsa síðasta leggnum vegna mótmæla Sport „Ég verð að horfa í spegilinn eftir svona frammistöðu“ Fótbolti Skoraði hundraðasta markið eftir 637 daga fjarveru Fótbolti Uppgjör: Valur - Stjarnan 1-2 | Stjarnan mætt af fullum þunga í titilbaráttuna Íslenski boltinn Glódís langbest Íslendinga í nýja leiknum Fótbolti Daníel Tristan skoraði tvö og benti á Guðjohnsen-nafnið Fótbolti Uppgjörið: KR - Víkingur 0-7 | KR-ingar niðurlægðir á heimavelli Íslenski boltinn „Hrikalega sáttur með þetta“ Fótbolti Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Körfubolti Ricky Hatton látinn Sport Fleiri fréttir Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda ÍR komið á blað þökk sé ótrúlegri frammistöðu Baldurs Fritz Fimm íslensk mörk í stórtapi Kolstad Janus Daði komst ekki á blað í naumu tapi Bognir en hvergi bangnir: „Ekki alltaf sólskin og sleikjóar“ Ómar Ingi fór áfram hamförum Engin vandamál hjá Arnari Birki og félögum Óðinn markahæstur á vellinum Rétthentu landsliðshornamennirnir í stuði Gamla merkið verður áfram á landsliðsbúningunum Birna Berg snýr aftur í landsliðið og tveir nýliðar Reif gjallarhornið úr höndum stuðningsmanns eftir fúkyrðaflaum Donni og félagar örugglega áfram í Evrópudeildinni Nýliðar KA/Þórs byrja með sigri Langþráð hjá Melsungen Viggó markahæstur í eins marks tapi KA lagði nýliðana á Selfossi Stórleikur Söndru tryggði ÍBV sigur Hófu titilvörnina með sigri og Sara með stórleik á Ásvöllum Sjá meira