Páfinn segir það sjálfselskt að velja gæludýr fram yfir börn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. janúar 2022 07:32 Páfinn hefur margsinnis verið myndaður þar sem hann lætur vel að dýrum. epa/Claudio Peri Frans páfi segir sjálfselskt þegar fólk velur að eignast gæludýr í stað barna. Fólki kynni að þykja það fyndið en svona væri raunveruleikinn, sagði hann þegar hann ávarpaði viðstadda í Páfagarði.
Páfinn var að ræða foreldrahlutverkið þegar hann sagði að í dag yrði vart ákveðinnar sjálfselsku. „Við sáum að sumt fólk vill ekki eignast barn,“ sagði hann í þessu samhengi. „Stundum á það eitt barn og ekki fleiri en það á hunda og ketti sem koma í stað barna. Þetta kann að vekja hlátur en þetta er raunveruleikinn,“ sagði páfi. Páfi sagði þetta afneitun á móður- og föðurhlutverkinu og gera lítið úr manninum; draga úr mannúð mannkynsins. Hann sagði að þeir sem gætu ekki eignast börn af líffræðilegum ástæðum ættu að íhuga að ættleiða og að fólk ætti ekki að óttast foreldrahlutverkið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem páfinn viðrar þá skoðun sína að fólk sé að skipta barneignum út fyrir gæludýr en árið 2014 sagði hann það auðveldara tilfinningalega að eiga dýr en börn en það væri til marks um „menningarlega hrörnun“ þegar fólk veldi dýr fram yfir börn. BBC greindi frá.
Páfagarður Dýr Börn og uppeldi Gæludýr Mest lesið Þurfa að skila útprentuðum eyðublöðum því ekki tókst að uppfæra Völu Innlent Talinn hafa stungið mann eftir að hafa skemmt bílinn hans Innlent Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum Innlent „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ Innlent Banaslys við Fossá Innlent Combs sakaður um enn eina kynferðisárásina Erlent Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð Innlent Sakar Hezbollah um að leiða Líbanon „að hyldýpinu“ Erlent Infowars á uppboð í nóvember upp í skuld við syrgjandi fjölskyldur Erlent Fleiri fréttir Hútar vilja háþróaðar stýriflaugar frá Rússum Combs sakaður um enn eina kynferðisárásina Infowars á uppboð í nóvember upp í skuld við syrgjandi fjölskyldur Starfsmenn Boeing sagðir hafna tilboði um 30 prósent launahækkun Sakar Hezbollah um að leiða Líbanon „að hyldýpinu“ Sonur tilræðismannsins handtekinn vegna barnaníðsefnis Með þrjú flugmóðurskip á sjó í fyrsta sinn Enn einn leiðtogi Hezbollah felldur Þreföldun á endurnýjanlegri orkuframleiðslu innan seilingar Skutu viðvörunarskotum að norsku skipi í norskri lögsögu Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana „Sterk Úkraína mun neyða Pútín að samningaborðinu“ Halda árásum áfram og beina sjónum að eldflaugastæðum Hezbollah Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Risavaxin mörgæs slær í gegn Um 500 látin í árásum Ísraela á Líbanon Ætlaði sér að ráða Trump af dögum Fólk flýr Beirút undan mannskæðum árásum Ísraela Selenskíj heimsótti lykilríki og þakkaði fyrir vopnin Flúði þegar sveitir Maduro ætluðu að grípa hann Fimmtán á sjúkrahús eftir lestarslys í Svíþjóð Starfsmenn flýja framboð Robinson eftir „svartur nasisti“-hneykslið Fjórir myrtir og fjöldi særður eftir skotárás í Alabama Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Sjá meira