Þetta kemur fram í tilkynningu frá Brimi en að sögn félagsins verður hlutverk Sveins að skapa tækifæri til verðmætaaukningar í starfsemi og nærsamfélagi Brims og leiða framkvæmd stefnu félagsins á sviði nýsköpunar, vöruþróunar og loftslagsmála.
„Viðfangsefni hans er að gæta að virðisauka í öllum starfsþáttum félagsins og heildarhagsmunum Brims til lengri tíma. Með ráðningu Sveins stefnir Brim að aukinni samvinnu við íslensk og alþjóðleg fyrirtæki, háskóla og rannsóknarstofnanir á sviði sjálfbærrar nýtingar hráefna og vistvæns rekstrar í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna,“ segir á vef fyrirtækisins.
Sveinn er með doktorspróf í iðnaðarverkfræði og hefur lokið stjórnunarnámi við Harvard Business School. Sveinn hefur starfað sem sjálfstæður ráðgjafi á sviði nýsköpunar og stefnumótunar, einkum tengt sjávarútvegi og verðmætasköpun í landbúnaði.
Hann gegndi áður starfi forstjóra, sviðsstjóra og deildarstjóra hjá Matís og hefur verið sveitarstjóri Skútustaðahrepps frá 2020.
Ákærður fyrir að eiga þátt í ólöglegri sölu
Sveinn komst í fréttir árið 2019 þegar hann var ákærður fyrir brot á lögum um slátrun og sláturaðferðir með því að hafa staðið að sölu og dreifingu á fersku lambakjöti sem slátrað var utan löggilts sláturhúss á bændamarkaði í Skagafirði.
Hin meintu brot áttu sér stað á meðan hann starfaði hjá Matís en salan og framleiðslan var hluti af tilraunaverkefni sem Matís hafði umsjón með. Á markaðnum var meðal annars selt kjöt af lömbum sem hafði verið slátrað í samræmi við verklag sem Matís hafði lagt til.
Sveinn neitaði sök í málinu og var sýknaður af ákærunni í Héraðsdómi Norðurlands vestra. Hann hafði þá verið rekinn frá Matís árið 2018, þremur vikum eftir að Matvælastofnun fór þess á leit við lögreglu að rannsókn yrði hafin á málinu.
Lykilinn að lausn loftslagsmála
„Það er ánægjulegt að fá Svein í Brim teymið. Hann hefur í störfum sínum sýnt eftirtektarvert frumkvæði og þor, sem eru nauðsynlegir eiginleikar þegar leiða skal Brim enn frekar inn á brautir sjálfbærrar þróunar, nýsköpunar og alþjóðlegs samstarfs,“ segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, í tilkynningu um ráðninguna.
„Nýsköpun og samfélagsleg ábyrgð eru lykillinn að lausn loftslagsmála, sem er stærsta áskorunin sem mannkynið stendur nú frammi fyrir. Brim hefur sýnt í verki mikla ábyrgð í umgengni við náttúru og samfélög. Það er afar spennandi að geta haft áhrif á stefnu hjá öflugu sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi við uppbyggingu á hringrásarhagkerfi og vistkerfi nýsköpunar,“ segir Sveinn.