Kyrie Irving og James Harden náðu ekki að skora tuttugu stig samanlagt þegar Brooklyn Nets tapaði 112-101 á útivelli á móti Sacramento Kings en Irving skoraði 14 stig og Harden var bara með 4 stig. Þetta var sjötta tap Brooklyn liðsins í röð.
Tyrese Haliburton (4 STL) swipes the pass and finds Buddy Hield (18 PTS) for 3 !
— NBA (@NBA) February 3, 2022
The @SacramentoKings are in the midst of a 21-6 run on NBA League Pass: https://t.co/oz9UCQxdQa pic.twitter.com/qKvqaXBT5n
Harden spilaði í 37 mínútur og átti 12 stoðsendingar en hann hitti aðeins úr 2 af 11 skotum, klikkaði á öllum fimm þriggja stiga skotum sínum, fékk ekki eitt víti og tapaði sex boltum. Irving hitti úr 5 af 15 skotum sínum. Nic Claxton var atkvæðamestur í Nets liðinu með 23 stig og 11 fráköst.
Harrison Barnes skoraði 19 stig fyrir Sacramento og þeir Davion Mitchell og Buddy Hield voru báðir með átján stig. Kings liðið var búið að tapa sjö leikjum í röð fyrir leikinn.
Norman Powell (28 PTS) ties it up for the blazers, and AD (28 PTS) immediately responds with a jumper of his own!@trailblazers: 89@Lakers: 94
— NBA (@NBA) February 3, 2022
52 seconds left on NBA League Pass: https://t.co/oz9UCQxdQa pic.twitter.com/JXQlQJlvPF
Anthony Davis var með 30 stig og 15 fráköst og Carmelo Anthony kom með 24 stig og fimm þristar úr sex skotum af bekknum þegar Los Angeles Lakers vann 99-94 sigur á Portland Trail Blazers. Lakers menn voru búnir að tapa þremur leikjum í röð fyrir leikinn.
Russell Westbrook vantaði bara eitt stig til að ná þrenunni en hann endaði leikinn með 13 stoðsendingar, 10 fráköst og 9 stig. LeBron James missti af leiknum eins og hinum á undan vegna meiðsla á hné. Norman Powell skoraði 30 stig fyrir Portland.
Tre Mann and Lu Dort were letting it fly from deep as they combined for 59 PTS & 12 3PM to get the win for the @okcthunder in OT! #ThunderUp@Tre2Mann3: 29 PTS | 6-8 3PM @luthebeast: 30 PTS | 6 REB | 6 3PM pic.twitter.com/ARnzmDZYMS
— NBA (@NBA) February 3, 2022
Luka Doncic skoraði 40 stig og gaf 10 stoðsendingar en það dugði ekki Dallas Mavericks liðinu sem tapaði 120-114 í framlengingu á heimavelli á móti liði Oklahoma City Thunder. Þetta er í fyrsta sinn síðan í desember sem Dallas tapar tveimur leikjum í röð.
Lu Dort skoraði 30 stig fyrir Thunder þar af 14 stig í röð í framlengingunni. Nýliðinn Tre Mann var með 29 stig og þeir Josh Giddey (14 stig og 10 stoðsendingar) og Darius Bazley (13 stig og 11 stoðsendingar) voru báðir með tvennu af bekknum í þessum öðrum sigir liðsins í röð.
Spencer Dinwiddie og Kyle Kuzma voru mennirnir á bak við það að Washington Wizards tókst að enda sex leikja taphrinu sína með óvæntum 106-103 útisigri á Philadelphia 76ers.
Dinwiddie skoraði körfuna sem kom Wizards yfir í lokin auk þess að vera með þrennu (14 stig, 12 fráköst og 10 stoðsendingar) og Kuzma var með 24 stig og varði skot frá Joel Embiid á mikilvægum tímapunkti í lokin. Embiid var með 27 stig og 14 fráköst fyrir 76ers en það nægði ekki til að lengja fimm leikja sigurgöngu liðsins.
Time Lord gets the CLUTCH block for the @celtics late in the 4th to seal the victory! pic.twitter.com/cGn0ZVT7ex
— NBA (@NBA) February 3, 2022
Marcus Smart skoraði 22 stig og Jaylen Brown var með 15 stig þegar Boston Celtics vann 113-107 sigur á Charlotte Hornets en þetta var þriðji sigur Celtics liðsins í röð. LaMelo Ball skoraði 38 stig fyrir Charlotte en það dugði ekki til og liðið hefur nú tapað fjórum af síðustu sex leikjum sínum.
Houston Rockets endaði ellefu leikja taphrinu á heimavelli með 115-104 sigri á Cleveland Cavaliers en þetta var fyrsti sigur liðsins í Houston síðan 8. desember. Christian Wood og nýliðinn Jalen Green skoruðu báðir 21 stig.
The @memgrizz got the win as Ja Morant & Jaren Jackson Jr. combined for 49 PTS on the road in NYC! #GrindCity@JaMorant: 23 PTS, 9 AST, 3 STL@jarenjacksonjr: 26 PTS, 10 REB, 2 BLK pic.twitter.com/gcw6yw3YmP
— NBA (@NBA) February 3, 2022
- Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:
- Los Angeles Lakers - Portland Trail Blazers 99-94
- Sacramento Kings - Brooklyn Nets 112-101
- Utah Jazz - Denver Nuggets 108-104
- Philadelphia 76ers - Washington Wizards 103-106
- Indiana Pacers - Orlando Magic 118-119
- Boston Celtics - Charlotte Hornets 113-107
- New York Knicks - Memphis Grizzlies 108-120
- Houston Rockets - Cleveland Cavaliers 115-104
- Dallas Mavericks - Oklahoma City Thunder 114-120 (framlenging)

Lögmál leiksins er vikulegur þáttur um NBA-deildina sem er sýndur á mánudögum á Stöð 2 Sport 2. NBA-deildin er hluti af Sport Erlent sem kostar kr. 3.990 á mánuði. Smelltu hér til að kaupa áskrift.